Erlent

Fær vægan fangelsisdóm fyrir manndráp

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Ísraelski hermaðurinn Elor Azaria ásamt móður sinni stuttu áður en dómur var kveðinn upp í gær.
Ísraelski hermaðurinn Elor Azaria ásamt móður sinni stuttu áður en dómur var kveðinn upp í gær. vísir/epa
Ísraelski hermaðurinn Elor Azaria hlaut í gær 18 mánaða fangelsisdóm fyrir manndráp. Hann skaut til bana Palestínumanninn Abdel al-Fattah al-Sharif í bænum Hebron á Vesturbakkanum þann 24. ágúst á síðasta ári. Leiðtogar Palestínumanna og ýmis mannréttindasamtök hafa fordæmt þennan dómsúrskurð, sagt hann alltof vægan.

„Azaria hefði átt að fá ævilangt fangelsi,“ hefur fréttastofan Al Jazeera eftir Jamal Zahalka, palestínskum þingmanni á Ísraelsþingi. „Þetta mun ekki verða öðrum byssuglöðum hermönnum til fælingar.“

Hann segir að þúsundir annarra ísraelskra hermanna hafi drepið Palestínumenn, en engin réttarhöld hafi verið haldin yfir þeim.

Margir Ísraelar hafa hins vegar sagt dóminn of þungan. Helst hefði hann átt að sleppa alfarið við fangelsisdóm.

Benjamín Netanjahú forsætisráðherra hefur sagt að náða eigi Azaria og Miri Regev, menningarráðherra í stjórn Netanjahús, hefur sagt að Azaria ætti ekki að sitja einn einasta dag í fangelsi.

Dómstóllinn taldi hins vegar að verknaðurinn hafi bæði brotið gegn siðareglum ísraelska hersins og skaðað ísraelskt samfélag. Auk þess hafi Azaria aldrei sýnt neina iðrun.

Myndband náðist af því þegar Azaria skaut al-Sharif. Þetta myndband fór víða á netinu og í fjölmiðlum. Þar sést greinilega að Sharif lá særður á götunni og hafði legið þar góða stund þegar Azaria tekur upp á því að skjóta hann.

Sharif hafði, ásamt öðrum Palestínumanni, ráðist með hnífum á ísraelska hermenn. Þeim tókst að særa einn hermann. Ísraelsku hermennirnir skutu þá á árásarmennina. Annar þeirra lést strax en hinn, Sharif, særðist og lá á götunni með lífsmarki þangað til Azaria skaut á hann.

Litið hefur verið á þetta dómsmál sem prófstein á ísraelskt réttarfar. Azaria var sakfelldur í síðasta mánuði fyrir manndráp. Dómarinn sagði hann hafa reynt að réttlæta verknaðinn en ekki tekist það. Fjölskylda Shar­ifs sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún fordæmdi dómsúrskurðinn en sagðist ekki vera undrandi.

„Við vissum það frá upphafi að þetta væru sýndarréttarhöld,“ segir í yfirlýsingunni. „Dómurinn sem hann hlaut er vægari en palestínskt barn fær fyrir að kasta steinum.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×