Golf

Faðir Ólafíu Þórunnar: Litla stráið mitt orðið stórt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafía og Kristinn faðir hennar á Íslandsmótinu í golfi 2014.
Ólafía og Kristinn faðir hennar á Íslandsmótinu í golfi 2014. Vísir/GSÍ
„Ég er „home alone“, hrærður, með gæsahúð og tárin í augunum. Þetta er ótrúlegt, alveg rosalegt,“ sagði Kristinn J. Gíslason, faðir Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, sem tryggði sér fyrir skömmu sæti á LPGA- mótaröðinni í golfi.

Ólafía lenti í 2. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðina, sem er sterkasta atvinnumótaröð í heimi. Ólafía lék samtals á 12 höggum undir pari og var aðeins einu höggi á eftir Jaye Marie Green frá Bandaríkjunum.

Mótið fór fram í Flórída en Kristinn fylgdist með því heiman frá.

„Frá því hún var lítill krakki hef ég alltaf kallað hana litla stráið mitt. En núna er litla stráið mitt orðið stórt,“ sagði Kristinn stoltur. En hversu raunhæft var markmiðið, að komast alla leið inn á LPGA-mótaröðina?

„Í sumar sá ég að það var komið annað yfirbragð á hana. Hún hefur alltaf verið dugleg að vinna í andlega þættinum. Sjálfur hef ég stundað hugleiðslu frá því ég var ungur og hef reynt að gauka að henni atriðum eins og að halda ró sinni. En svo áttaði ég mig á því að hún var komin fram úr mér í þeim efnum,“ sagði Kristinn og bætti því við að Ólafía hafi bætt sig mikið sem kylfingur.

„Það voru ákveðnar þættir sem eru komnir núna. Langi leikurinn hennar er með því besta sem gerist, hún hittir flestar brautirnar og flest flatirnar, en það hefur vantað örlítið upp á sippin og púttin. Núna er hún búin að „mastera“ þetta. Ég á ekki von á öðru en það verði framhald á þessu hjá henni,“ sagði Kristinn að lokum.


Tengdar fréttir

Ólafía hafnaði í öðru sæti og tryggði sér þátttökurétt á LPGA

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, hafnaði í öðru sæti á úrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðinna sem lauk rétt í þessu en með því tryggði hún sér þátttökurétt á þessari sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í heiminum á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×