Viðskipti erlent

Facebook, Instagram og Tinder niðri í nótt

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Samfélagsmiðlarnir Facebook, Instagram og Tinder virkuðu ekki í nótt um heim allan. Aðrir samfélagsmiðlar eins og Twitter virkuðu enn og hefur kassamerkið Facebookdown verið notað gríðarlega mikið þar.

Í lok september í fyrra notaði 1,25 milljarður manna Facebook á degi hverjum. Samfélagsmiðillinn lá niðri í rúma klukkustund.

Hakkarahópurinn Lizard Squad virðist hafa gert árás á samfélagsmiðlana, en samkvæmt Twitter síðu þeirra, gerðu þeir einnig árás á MySpace.

Lizard Squad gerði einnig árás á tölvukerfi Malaysia Airlines í gær, samkvæmt Sky News. Á heimasíðu fyrirtækisins settu þeir upp skilaboðin: 404 - Plane not found. Hacked by Cyber Caliphate.

Þar að auki gerði hópurinn árás og Microsoft og Sony um jólin, svo að leikjaþjónustur fyrirtækjanna lágu niðri.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir færslur á Twitter, sem notast við #Facebook down. Fjölmörg þeirra eru bráðfyndin og margir notendur Twitter vekja athygli á því hve margir séu háðir Facebook.

Forrit sem tengjast við Facebook virkuðu ekki heldur í nótt. Þar á meðal er Tinder en Instagram er einnig í eigu Facebook.

Kassamerkið ThingsIDidWhenFacebookWasDown, eða; Það sem ég gerði á meðan Facebook lá niðri, hefur einnig vakið mikla lukku nú í morgunsárið.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×