Bíó og sjónvarp

Þetta verður kvöldið hans Péturs

“Hvaaaa, neineineineineinei... ég verð ekki fullur. Geri allt svona sóber,” segir Pétur Jóhann Sigfússon. Hann mun standa í eldlínunni í kvöld ásamt Ragnhildi Steinunni þegar þau verða kynnar í því sem hlýtur að teljast einn hápunkta samkvæmislífsins í henni Reykjavík.

Bíó og sjónvarp

Sófakynslóð frumsýnd

Heimildarmyndin Sófakynslóðin – heimildarmynd um aktívisma á Íslandi, verður frumsýnd í Háskólabíói í dag. Háskólanemarnir Áslaug Einarsdóttir og Garðar Stefánsson gerðu myndina og er ætlun þeirra að vekja áhuga ungmenna á því að hafa áhrif á samfélag sitt með ýmiss konar aðferðum. Myndin hefst klukkan 13.00 í sal 3 og er ókeypis inn. Myndin verður síðan sýnd í framhaldsskólum víða um land.

Bíó og sjónvarp

Slær met í Bretlandi

Nýjasta Bond-myndin, Casino Royale, náði inn meiri peningum á sínum fyrsta sýningardegi í Bretlandi en nokkur önnur Bond-mynd. Alls seldust 1,7 milljón miðar á myndina. Er það tvöfalt meira en keypt var á fyrsta sýningardegi Bond-myndarinnar Die Another Day, sem átti fyrra metið.

Bíó og sjónvarp

Nýi kvikmyndasamningurinn

Rétt ár er liðið frá því menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, lýsti því yfir í beinni útsendingu á Eddunni að hún vildi endurnýja samkomulag við hagsmunaaðila í kvikmyndaiðnaði, en þá hafði það runnið út nær tíu mánuðum fyrr.

Bíó og sjónvarp

Þrumufleygurinn Craig

Bond er kominn aftur með látum og hefur aldrei verið betri. Það þarf að leita allt aftur til From Russia With Love til þess að finna jafningja Casino Royale.

Bíó og sjónvarp

Ævintýrin gerast ennn

,Harry Potter verður í jólafríi þetta árið en þeir sem þrá alvöru ævintýri í bíó um jólin þurfa ekki að örvænta. Eragon mun fylla skarðið en rétt eins og Harry Potter þá byggir hún á vinsælli ævintýrabók. Þá eru tökur á Gyllta áttavitanum í fullum gangi en þessi fyrsta mynd sem byggir á vinsælum þríleik Philips Pullman verður jólamynd ársins 2007.

Bíó og sjónvarp

Þjóð í hlekkjum hugarfarsins

Kvikmyndaklúbburinn Kviksaga sem starfar innan Reykjavíkurakademíunnar sýnir í kvöld fyrsta þáttinn og brot úr seinni þáttunum þremur af leikinni heimildamynd, Þjóð í hlekkjum hugarfarsins, eftir Baldur Hermannsson. Jón Þór Pétursson sagnfræðingur mun jafnframt fjalla um efni þáttaraðarinnar og viðbrögð við henni. Röðin var sýnd í Ríkissjónvarpinu vorið 1993 og var í fjórum þáttum.

Bíó og sjónvarp

Sérstakar sýningar fyrir heyrnarskerta

Kvikmyndin Börn verður sýnd í Háskólabíói dagana 17., 18. og 19. nóvember með íslenskum texta en samkvæmt fréttatilkynningu sem leikhópurinn Vesturport sendi frá sér vill hópurinn með þessu koma til móts við heyrnarskerta og heyrnarlausa áhorfendur sem áhuga hafa á að sjá myndina. Tveir sýningartímar eru á Börnum umrædda daga, klukkan 20.00 og 22.00.

Bíó og sjónvarp

Hristur, hrærður og í banastuði

Tuttugasta og fyrsta James Bond myndin, Casino Royale, verður frumsýnd um víða veröld á morgun og Ísland er vitaskuld engin undantekning. Myndarinnar hefur verið beðið með óvenju mikilli eftirvæntingu enda stígur Daniel Craig sín fyrstu spor sem Bond í henni.

Bíó og sjónvarp

Beyoncé og Eva saman

Söngkonan Beyoncé Knowles og leikkonan Eva Longoria eru í samningaviðræðum um að leika lesbískar ástkonur í kvikmyndinni Tipping the Velvet.

Bíó og sjónvarp

Barist um Frank-N-Furter

Rokksýningin Rocky Horr-or hefur verið vinsæl hjá bæði áhugaleikhópum og atvinnuleikhúsum. Ekki fær þó hver sem er að bregða sér í hlutverk Frank- N-Furter. Sigurður Kaiser setur verkið upp eftir áramót.

Bíó og sjónvarp

Vesalingar á Broadway

Vesalingarnir koma aftur upp á Broadway í nóvember og hefjast forsýningar aðra helgi. Eru sýningar áætlaðar í sex mánuði. Það er sama gengið sem stendur að sýningunni og vann upphaflegu sviðsetninguna fyrir RSC sem frumsýnd var síðla árs 1985. Sú sviðsetning flutti síðan í West End og á Broadway. Þar gekk hún frá 1987 til 2003.

Bíó og sjónvarp

Orrustan um Alsír sýnd

Við lát ítalska leikstjórans Gillo Pontecorvo fyrir skemmstu hafa menn víða um lönd dustað rykið af meistaraverki hans frá 1966, Orrustunni um Alsír, eða La Battaglia di Algeri. Í kvöld og á laugardag verður hún sýnd í Bæjarbíói í Hafnarfirði á vegum Kvikmyndasafnsins.

Bíó og sjónvarp

Heiðraður af Dönum

Leikstjórinn Dagur Kári Pétursson fær enn eina rósina í hnappagatið en tilkynnt hefur verið að leikstjórinn hljóti hin virtu Peter Emil Refn-verðlaun sem afhent verða 22. nóvember næstkomandi.

Bíó og sjónvarp

Gaza-ströndin

Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir sýningu á kvikmyndinni Gaza Strip á Kaffi Kúltúra í Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18, í kvöld. Hljómsveitin Retro Stefson mun leika nokkur lög áður en sýningin hefst og Sveinn Rúnar Hauksson læknir heldur stutta tölu um aðskilnaðarmúrinn sem risinn er á herteknu palestínsku landi og ástandið á Gaza.

Bíó og sjónvarp

Frímann á iTunes

Aðdáendum gamanþáttarins Sigtið, sem var nýverið tilnefndur til Eddu-verðlaunanna, gefst nú kostur á að nálgast þáttinn á iTunes. Hægt er að sækja þáttinn á vefslóðinni www.podcast.is og horfa á hann beint í tölvunni eða flytja hann yfir á iPod og horfa á hann hvar sem er.

Bíó og sjónvarp

Valnefndarmenn Eddunnar hafa orðið fyrir áreitni

"Að menn tilnefni sjálfa sig? Það er auðvitað ekki um það að ræða,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, stjórnarmaður í kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni. Nokkur ólga er meðal kvikmyndagerðarmanna því stjórnin hefur ákveðið að gefa ekki út opinberlega hverjir skipa hverja valnefnd, þeirra sem völdu hverjir hlutu tilnefningu til Edduverðlauna.

Bíó og sjónvarp

Styttist í Skrekk

Undanúrslit Skrekks, sem er hæfileikakeppni ÍTR fyrir nemendur grunnskóla Reykjavíkur, hefst þann 13. nóvember í Borgarleikhúsinu. Um er að ræða þrjú undaúrslitakvöld og fara þau farm 13., 14., og 15. nóvember. Allir grunnskólar í Reykjavík taka þátt í keppninni en þátttakendur eru í 8. - 10. bekk.

Bíó og sjónvarp

Forsala á netinu

Miðasala á almennar sýningar í Smárabíói og Regnboganum er hafin í fyrsta sinn á netinu á slóðinni midi.is/bio. Hingað til hefur midi.is verið leiðandi í sölu aðgöngumiða á tónleika, leiksýningar, íþróttaviðburði eða annað en nú hafa kvikmyndahúsin loksins bæst við.

Bíó og sjónvarp

Ísland í sviðljósinu hjá MTV

Hryllingsmyndaleikstjórinn Eli Roth er staddur hér á landi til að taka upp nokkur atriði fyrir mynd sína Hostel II. Eli lýsti því yfir í Fréttablaðinu að ferðalag hans hingað væri bara léleg afsökun fyrir að komast á hestbak á Ingólfshvoli þar sem leikstjórinn á hest.

Bíó og sjónvarp

Beðmálin í bíó

Samkvæmt US OK! bendir allt til þess að búin verði til kvikmyndaútgáfa af hinum vinsæla þætti Sex and The City sem var svo hagalega þýddur Beðmál í borginni og sýndur á RÚV.

Bíó og sjónvarp

Mel Gibson heiðraður

Leikarinn og leikstjórinn Mel Gibson fékk nýverið Latino-heiðursverðlaun fyrir væntanlega kvikmynd sína Apocolypto. Voru verðlaunin afhent í Los Angeles, þar sem fólk af suður-amerískum uppruna er afar fjölmennt.

Bíó og sjónvarp

Á hlut í níu Eddu-tilnefningum

Tilnefningar til Eddu-verðlaunanna voru tilkynntar á fimmtudaginn og fullyrða má að verk tengd leikstjóranum Ragnari Bragasyni hafi staðið upp úr. Sjálfur er Ragnar tilnefndur til fjögurra verðlauna, eina tilnefningu hlaut hann sem leikstjóri ársins fyrir sjónvarpsþáttinn Stelpurnar og þrjár fyrir kvikmyndina Börn sem keppir við bæði Mýrina og Blóðbönd um titilinn besta kvikmynd ársins.

Bíó og sjónvarp