Sport

Eygló Ósk ætlar að fara á leik með bandaríska körfuboltaliðinu í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir.
Eygló Ósk Gústafsdóttir. Vísir/Anton
Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir hefur lokið keppni á Ólympíuleikunum í Ríó og er komin í verðskuldað frí eftir frábæra framgöngu sína á leikunum þar sem hún setti bæði Íslands- og Norðurlandamet og komst í úrslit í 200 metra baksundi.

Það er hinsvegar enn vika eftir af Ólympíuleikunum og Eygló Ósk ætlar að reyna að drekka í sig eins mikla Ólympíustemmningu og hún getur enda staðráðin að koma reynslunni ríkari á Ólympíuleikana í Tókýó eftir fjögur ár.

„Ég er strax búin að skrá mig niður á Bandaríkin og Frakkland í körfuboltanum. Ég er mjög spennt fyrir því. Svo ætla ég að reyna að fara og horfa á stelpurnar sem eru að keppa í næstu viku. Reyna að grípa í allt sem ég get á Ólympíuleikunum. Njóta þess," segir Eygló Ósk.

Þetta eru hennar aðrir Ólympíuleikar en hún var aðeins sautján ára gömul í London árið 2012. Nú veit hún meira um hvað þetta snýst.

„Á seinustu leikum þá fór ég aðeins fyrr út þorpinu og ákvað að vera með fjölskyldu minni og svona. Þá var ég aðeins yngri og var búin að vera alltof lengi í æfingabúðum. Núna ákvað ég að vera alveg fram að lokahátíðinni og upplifa alla Ólympíuleikana. Ég sé alls ekki eftir því og þetta verður bara gaman," segir Eygló Ósk.


Tengdar fréttir

Lét hinar halda að þær þyrftu ekki að hræðast mig

Það var rosalega gaman að hitta á sundkonuna Eygló Ósk Gústafsdóttur eftir undanúrslitin í 200 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó í fyrrinótt því þessi 21 árs gamli Ægiringur gat örugglega ekki verið glaðari þegar hún hitti undirritaðan.

Eygló Ósk: Mjög erfitt en líka ótrúlega gaman

Eygló Ósk Gústafsdóttir varð áttunda í 200 metra baksundi kvenna á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt en þetta er næstbesti árangur íslenskrar sundkonu á Ólympíuleikum.

Eygló Ósk í úrslit: Ég er næstum því að fara gráta

Eygló Ósk Gústafsdóttir átti erfitt með sig eftir undanúrslitasundið í 200 metra baksundi á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt. Hún náði sjöunda besta tímanum, setti nýtt glæsilegt Íslandsmet og komst í úrslit. Stórkostleg frammistaða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×