Sport

Eygló og Inga settu Íslandsmetin fyrir Ægi en ekki ÍBR

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir.
Eygló Ósk Gústafsdóttir. Vísir/Pjetur
Sundfélagið Ægir hefur gert athugasemd vegna umfjöllunar undanfarið þar sem var rætt um sameiningu sundfélaganna í Reykjavík undir merkjum ÍBR, Íþróttabandalags Reykjavíkur.

Sundfélagið Ægir vill koma því á framfæri að félögin Ægir, Ármann, Fjölnir og KR eiga aðeins í samvinnu um sundþjálfun afrekshópa og elstu sundmanna.  

Félögin hafa í tvígang keppt saman á sundmótum undir merkjum Íþróttabandalags Reykjavíkur en ekki hefur verið samið um áframhaldandi samstarf í þeim efnum.  

Sundfólk Reykjavíkurfélaganna er skráð í sín félög og vinna til afreka í nafni síns félags. Ægir vill benda á að öll afrek sundfólks úr Ægi,  þar á meðal Íslandsmetin sem Eygló Ósk Gústafsdóttir og Inga Elín Cryer settu á Íslandsmeistaramóti í 25 metra laug  fyrir skömmu eru og voru sett í nafni sundfélagsins Ægis.

Eygló Ósk Gústafsdóttir setti sex Íslandsmet í einstaklingsgreinum á mótinu og Inga Elín Cryer tvö.

Eygló Ósk Gústafsdóttir sagði í viðtali við Fréttablaðið að hún væri ánægð með þessa samvinnu, æfingarnar væru betri og skemmtilegri.


Tengdar fréttir

Eygló Ósk bætti sólarhringsgamalt Íslandsmet sitt

Eygló Ósk Gústafsdóttir setti nýtt Íslandsmet í dag þegar hún tryggði sér sigur í 100 metra baksundi á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug sem fer fram í Ásvallarlaug í Hafnarfirði.

Eygló Ósk setti sjö Íslandsmet um helgina

Eygló Ósk Gústafsdóttir átti frábæra helgi á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug en hún setti alls sjö Íslandsmet á keppnisdögunum þremur þar af sex þeirra í einstaklingsgreinum.

Ég kom sjálfri mér alveg rosalega á óvart

Sunddrottningin Eygló Ósk Gústafsdóttir var óumdeild stjarna Íslandsmeistaramótsins í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug um helgina. Eygló vann níu gull og setti sex Íslandsmet. Eitt þeirra hefði komið henni á pall á HM í Istanbúl fyrir tveimur árum

Eygló Ósk blómstrar hjá "nýja“ félaginu

Eygló Ósk Gústafsdóttir, nífaldur Íslandsmeistari í sundi frá helginni, keppti fyrir "nýtt“ félag um helgina. Hún kemur úr Sundfélaginu Ægi, en nú hefur Reykjavíkurfélögunum öllum verið skellt saman undir nafni ÍBR.

Eygló og Inga Elín báðar með glæsileg Íslandsmet

Inga Elín Cryer og Eygló Ósk Gústafsdóttir, báðar úr ÍBR byrjuðu vel á Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug í Ásvallarlaug í kvöld. Stelpurnar settu báðar glæsilegt nýtt Íslandsmet í fyrstu grein.

Tíu fara til Katar í desember

Átta íslenskir sundmenn, fimm menn og þrjár konur, eru búnir að ná lágmarki inn á HM í 25 metra laug sem að þessu sinni fer fram í Doha, höfuðborg Katar.

Eygló fer á kostum

Eygló Ósk Gústafsdóttir sló í dag sitt þriðja og fjórða Íslandsmet á Íslandsmótinu í sundi, en Eygló Ósk hefur leikið á alls oddi á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×