Viðskipti erlent

ESB til aðstoðar búlgarska bankakerfinu

Randver Kári Randversson skrifar
Innistæðueigendur bíða fyrir utan banka í Sofiu á föstudag.
Innistæðueigendur bíða fyrir utan banka í Sofiu á föstudag. Vísir/AP
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur samþykkt beiðni búlgarskra yfirvalda um aðstoð við fjármögnun nokkurra af stærstu bönkum landsins sem talið er að hafi orðið fyrir skipulögðum árásum. Fimm hafa verið handteknir vegna málsins. BBC greinir frá þessu.

Framkvæmdastjórn ESB hefur framlengt lánalínu upp á 3,3 milljarða leva (um 2,3 milljarða dollara) til aðstoðar við búlgarska bankakerfið, en tveir búlgarskir bankar urðu fyrir áhlaupi í síðustu viku.

Í tilkynningu frá framkvæmdastjórninni kemur fram að aðstoðin sem nú er veitt sé í samræmi við þá nauðsyn að tryggja fullnægjandi greiðsluflæði bankakerfisins við tilteknar aðstæður. Jafnframt er lögð áhersla á að bankakerfið í Búlgaríu sé í grundvallaratriðum traust, þar sem það sé vel fjármagnað og hafi góða greiðslugetu samanborið við önnur aðildarríki.

Í síðustu viku varð KTB-bankinn, fjórði stærsti banki Búlgaríu, fyrir áhlaupi með þeim afleiðingum að seðlabanki landsins yfirtók bankann. Á föstudag þustu innistæðueigendur í þriðja stærsta banka landsins og tóku út innistæður sínar af ótta við að sá banki færi sömu leið. Fimm hafa verið handteknir, grunaðir um að hafa skipulagt atlögu að bankakerfinu.

Búlgarski seðlabankinn hefur hvatt til þess að opinberir aðilar vinni saman að því að tryggja fjármálastöðugleika og grípi til lagalegra aðgerða gegn þeim sem hafi breitt út ósannindi um ástand búlgarska bankakerfisins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×