Innlent

Engar vísbendingar um að gos sé í gangi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Í augnablikinu eru engar vísbendingar um að eldgos sé í gangi undir Dyngjujökli. Litakóði fyrir flug verður áfram rauður þar sem ekki er hægt að útiloka að eldgos sé yfirvofandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum og Veðurstofunni.

Hér að ofan má sjá myndband sem tekið var í flugi yfir svæðið fyrr í dag. Í því sjást engin merki þess að gos sé hafið.

Click here for an English version.

Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur greindi frá því við komuna til Reykjavíkur síðdegis, eftir flug yfir svæðið, að hann sæi engin merki þess að gos væri hafið.

Veðurstofan gerir upp atburði dagsins sem segja má að hafi hafist klukkan 11:20 þegar merki sáust um óróa sem gáfu sterkar vísbendingar um að gos gæti verið að hefjast. Síðdegis dró úr óróanum, en öflug skjálftavirkni heldur áfram.

Upp úr klukkan 14 flaug flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF að Vatnajökli með sérfræðinga frá Veðurstofunni og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands ásamt fulltrúa Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra. Flogið var yfir Bárðarbungu, Dyngjujökul og Jökulsá á Fjöllum í góðu skyggni. Yfirborð jökulsins var grandskoðað m.a. með sérútbúinni ratsjá og hitamyndavél vélarinnar. Hvorki sáust ummerki um eldgos í Dyngjujökli eða Bárðarbungu né um flóð við upptök Jökulsár.

Flogið var yfir svæðið í nokkra klukkutíma og engar breytingar sáust á þeim tíma. Mat vísindamanna er því að eldgos sé ekki í gangi.

Vegna stöðugrar áframhaldandi skjálftavirkni og gliðnunar hefur Veðurstofan ákveðið að litakóði fyrir flug verði áfram rauður. Sú ákvörðun verður endurmetin í fyrramálið. Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórana á Húsavík og Seyðisfirði hefur ákveðið að áfram verði starfað á neyðarstigi og verður sú ákvörðun endurmetin eftir hádegi á morgun.


Tengdar fréttir

Alþjóðleg flugfélög sneiða framhjá flugbannsvæðinu

Friðþór Eydal, talsmaður Isavia, segir að þar sé vel fylgst vel með gangi máli. „Við erum með sérstaka eldgosavakt í gangi. Við höfum samráð við fræðimenn og aðila sem fræða okkur um stöðu mála.

Ómar fylgist með jöklinum

„Ég er búinn að vera hérna að horfa á jökulinn síðan í hádeginu,“ segir Ómar Ragnarsson.

Stórt svæði lokað

Stórt svæði yfir suðaustanverðu landinu er lokað fyrir flugumferð, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu og Samhæfingamiðstöðinni. Ákvörðun um þessa lokun er endurmetin á tveggja klukkutíma fresti.

Vegir verða rofnir komi til flóðs

Vegir við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum verða rofnir komi til flóðs. Tæki eru til staðar í Öxarfirði og tæki eru á leiðinni að brúnni við Grímsstaði.

Veðurstofan og pollrólegar geitur bjóða góða nótt

„Með kveðju frá okkur og þessum pollrólegu geitum í Öxarfirði vonum við að þið farið varlega og allir sofi vel í nótt. Við erum á vaktinni,“ segir á Facebook-síðu Veðurstofu Íslands.

Engin ummerki um gos úr lofti

Vísindamenn um borð í flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-Sif, sem flaug yfir Dyngjujökul í dag, sáu engin ummerki um að eldgos sé hafið undir jöklinum

Undirbúa opnun fjöldahjálparstöðva

Undirbúningar er hafinn að því að opna fjöldahjálparstöðvar á Húsavík, Kópaskeri og í grunnskólanum í Reykjahlíð á Mývatni komi til þess að byggðirnar í Kelduhverfi, Núpasveit og Öxarfirði verði rýmdar.

Aukin skjálftavirkni við Bárðarbungu

Skjálftavirkni við Bárðarbungu hefur verið að aukast í morgun og hefur aukinn órói komið fram á mælum Veðurstofu Íslands undanfarna klukkustund eða svo. Ekki sjást merki um að kvika sé á leið til yfirborðs. Skjálftarnir eru flestir á 5-10 km dýpi.

Fólk í grennd við gosstöðvarnar hvatt til að fylgjast vel með fréttum

Búið er að loka Jökulsárgljúfrum og hafin rýming ferðamanna þaðan sem og af Dettifosssvæðinu í ljósi þess að gos er hafið undir sporði Dyngjujökuls. Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að að svo stöddu sé ekki talin ástæða til að rýma íbúa- og frístundabyggð í Kelduhverfi, Öxarfirði og Núpasveit.

Hraungos hafið undir Dyngjujökli

Talið er að lítið hraungos sér hafið undir Dyngjujökli. Talið er að um 150-400 metra þykkur ís sé yfir svæðinu. Litakóði fyrir flug hefur verið færður upp færður úr appelsínugulu í rautt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×