FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 16:00

Coach K hættur við að hætta með bandaríska landsliðið

SPORT

Endalok karlaveldisins

Vísir Skoðun 31. janúar 2011 06:00
Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður.
Freyr Eyjólfsson útvarpsmaður.
Freyr Eyjólfsson skrifar:
Frægt og umdeilt verk myndlistarmannsins Ragnars Kjartanssonar, Endalokin, á Feneyjatvíæringnum 2009 vakti mikið umtal á sínum tíma bæði varðandi kostnað og almennan fíflaskap í listum. Margir virtust misskilja hvað listamaðurinn var beinlínis að fara í þessu verki; þarna voru tveir karlmenn að dunda sér við bjórdrykkju og listmálun en með þessu verki var verið að boða endalok karlaveldisins. Karlar í
kreppu eftir kreppu.

Heimur karlmanna er nefnilega að breytast. Og það hratt. Á síðasta ári gerðist það í fyrsta skipti í sögu Bandaríkjanna að konur urðu fleiri á vinnumarkaði en karlar. Fleiri konur útskrifast úr háskólum og sífellt fleiri setjast í forstjórastóla þar í landi. Sama þróun virðist eiga sér stað á Íslandi og víða annars staðar á Vesturlöndum. Í kreppunni hér hafa aðallega karlar misst vinnuna og svo virðist sem hið tæknivædda nútímasamfélag kalli frekar á konur en karla til starfa. Bandarískar rannsóknir sýna að þegar fólk getur valið kyn í glasafrjóvgunum velur það frekar stúlkur en stráka; þær hafa nefnilega betri möguleika í lífinu. Þegar fólk er spurt vill það frekar eignast stelpu en strák. Strákar eru líklegri til vandræða og að feta glæpabrautina, lenda í umferðarslysum, eiga við vímuefnavandamál að stríða og svo framvegis. Karlar eru í mikilli krísu.

Karlmenn hafa verið ráðandi kyn í heiminum. Þeir hafa stjórnað með harðri hendi, oft með ofbeldi, eins og aðrir apafrændur sínir. Það hefur hins vegar gerst mjög hratt á síðustu áratugum að hlutur kvenna hefur farið vaxandi, sem virðist hafa mjög öflug hagræn áhrif í för með sér. Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hefur mælt bein hagræn áhrif jafnréttis. Þar sem konur hafa sömu réttindi og karlar er meiri hagsæld og meiri auður. Jafnrétti virðist borga sig, sama hvað menn halda. Sumir halda því jafnvel fram að kvenræði eða kvennaveldi sé hagstæðasta fyrirkomulagið. Fyrirtæki og stofnanir hafa í auknum mæli ráðið konur sem yfirmenn. Þar hafa karllæg gildi vikið fyrir kvenlægum. Það voru útrunnin karlmennskusjónarmið og testósterónæði sem keyrðu banka og fjármálafyrirtæki í þrot. Eftir standa fyrirtæki sem þurfa að temja sér önnur gildi og sum hafa þegar gert það. Viðskiptalífið, vinnumarkaðurinn og veröldin - allt breytist þetta núna hratt. Og stórtækasta breytingin virðist vera þessi: Ofurvald karlmanna er að líða undir lok.


+++++++++++++++++
Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Skoðun 23. maí 2013 07:00

Ouagadougou

Næringarspítalar eru skrýtnir staðir. Lífshættulega vannærð börn liggja um allt og halda ekki höfði. Sum börnin enduðu hér eftir að hafa drukkið óhreint vatn heima sem olli endurteknum magakveisum og ... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Aðgerðir gegn brottfalli

Eitt af þeim samfélagslegu markmiðum sem ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingar setti í sóknaráætlun til ársins 2020 er að hlutfall Íslendinga á aldrinum 20-66 ára sem ekki hafa lokið formlegu nám... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

„Túrbínutrixið“ í Helguvík

1970 var merkilegt ár í íslenskri virkjana- og náttúruverndarsögu, ár Laxárdeilunnar og greinar Nóbelskáldsins, "Hernaðurinn gegn landinu“, sem er enn í fullu gildi. Stjórn Laxárvirkjunar notaði... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Maltneska fyrirmyndin og Evrópa

Ísland hefur nú gert fríverslunarsamning við Kína og er það af hinu góða. Hins vegar breytir það litlu varðandi þá staðreynd að Evrópumarkaðurinn er og verður langmikilvægasti markaður fyrir íslenskar... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Færar leiðir til aukinnar framleiðni

Það hafa margir gripið á lofti þær góðu ábendingar sem finna má í skýrslu ráðgjafafyrirtækisins McKinsey um framleiðni á Íslandi. Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Stalínísk stórmennska í Gálgahrauni

Vegagerðin og Garðabær hafa skilað innanríkisráðherra greinargerð vegna nýs Álftanesvegar um Gálgahraun. Í greinargerðinni er því hafnað að hægt sé að koma til móts við óskir Hraunavina og annarra nát... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Mannréttindi, spilling og fjölbreytni

Ansi víða þar sem ég hef verið og komið á undanförnum árum og mánuðum á Íslandi hefur mér fundist beinlínis óþægilegt að finna hvað fólk er oft hikandi við að segja skoðanir sínar. Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Að fá lánað

Sem barn lærði ég muninn á að fá lánað og að fá gefins. Þegar ég lánaði bestu vinkonu minni hjólaskautana mína þá vildi ég fá þá alveg eins til baka. Og ekki bara annað stykkið heldur bæði því ég var ... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Merkur stjórnmálamaður og ríkisstjórn kveðja

Árið 2009 lét Jóhanna Sigurðardóttir undan þrábeiðni forystu Samfylkingarinnar og tók við tröllauknustu viðfangsefnum stjórnmála lýðveldistímans. Til hennar var leitað vegna heiðarleika hennar, heilin... Meira
Skoðun 23. maí 2013 06:00

Síðasti séns

Í dag, 23. maí, rennur út frestur til að gera athugasemdir við nýtt deiliskipulag um Austurvöll, Fógetagarð og Ingólfstorg. Ég hvet þig, lesandi góður, til að senda inn athugasemdir við téð skipulag a... Meira
Skoðun 22. maí 2013 06:00

Heimilin alltaf í forgang

Orð formanns Framsóknarflokksins um að staða og horfur í ríkisfjármálum væru verri en áður var talið féllu í grýttan jarðveg. Fráfarandi ráðherrar og stuðningsmenn fóru beint í skotgrafirnar og töluðu... Meira
Skoðun 22. maí 2013 06:00

Heitir rassar og hárlaus höfuð

Eftirfarandi viðbrögð hefur skemmtikraftur líklega aldrei þurft að heyra eftir að viðskiptavinur spyr hann hvað hann rukki fyrir vinnu sína: "Hva, þú getur nú gert þetta ódýrt fyrir okkur, við erum að... Meira
Skoðun 22. maí 2013 06:00

Hvað er verðbólga pabbi?

Upp úr árunum frá 1970 hófst skeið óðaverðbólgu á Íslandi og frá þeim tíma hefur verðbólga verið viðloðandi íslenskt efnahagslíf eins og ólæknandi sjúkdómur. Verðbólgan hefur skotið rótum í þjóðfélagi... Meira
Skoðun 21. maí 2013 09:30

Opin miðborg í andlitslyftingu

Margumbeðnar og löngu tímabærar endurbætur á Hverfisgötu hefjast innan tveggja mánaða. Stór hluti götunnar verður lagfærður í tveimur áföngum frá júlí og fram í október: Fyrst frá Vitastíg vestur að F... Meira
Skoðun 21. maí 2013 07:00

Skarpari en skólakrakki?

Á vef landlæknisembættisins er að finna marga nafnalista yfir þá sem fengið hafa starfsleyfi í heilbrigðisþjónustu m.a. ljósmæður, lækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga og aðrar stéttir sem starfa í heil... Meira
Skoðun 21. maí 2013 07:00

Strangtrúaðir netverjar

Stuttu fyrir Hrunið skrifaði ég pistil í bók og velti fyrir mér hvort það væri tilviljun að skopmyndirnar af Múhameð spámanni hefðu birst í einu stærsta dagblaðinu í Danmörku á sama tíma og Dansk Folk... Meira
Skoðun 18. maí 2013 16:00

Ísland með fyrstu einkunn, -að utan!

Í vikunni bárust a.m.k tvær jákvæðar fréttir sem tengjast áherslum Íslands í velferðarmálum. Báðar fréttirnar sýna að viðbrögð okkar við hruninu hafi verið félagslega meðvituð og árangursrík á sviði v... Meira
Skoðun 18. maí 2013 15:45

Sjúkratryggingar Íslands og ósannindin

Framganga SÍ og velferðarráðuneytisins vegna nýrrar lagasetningar og reglugerðar um greiðsluþátttöku SÍ á lyfjum hefur verið ótrúleg, svo ekki sé meira sagt. Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Endurmetum ástandið

Ég hef oft verið spurð að því hvort Suðurnesjamenn séu ólíkir öðrum íbúum landsins. Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Aðkoma hótels við Fógetagarð?

Um þessar mundir er í kynningu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Landsímareit í Kvosinni í Reykjavík. Samkvæmt henni má reisa hús í Kirkjustræti, á bílastæðinu andspænis hinum gömlu húsum Alþingis Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Ákall frá krabbameinssjúklingum

Á hverju ári hverfa læknar til útlanda að loknu læknanámi. Þar leggja þeir stund á framhaldsnám og flestir ílengjast áfram erlendis.... Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Vorpróf nemenda

Það er komið að lokapunktinum hjá nemendum mínum á þessari önn: lokapróf. Ég stend og horfi yfir hópinn á þessa einstaklinga sem ég hef fengið að kynnast eina önn.... Meira
Skoðun 17. maí 2013 11:30

Um Stephen Hawking og öryggi Ísraels

Í síðustu viku átti sá fréttnæmi atburður sér stað að einn frægasti og merkasti stjarneðlisfræðingur nútímans, Stephen Hawking, tók þá pólitísku ákvörðun að sniðganga ráðstefnuna ”The Israeli Pr... Meira
Skoðun 17. maí 2013 06:00

Grindavíkurbær sinnir náttúruvernd betur

Undanfarið hefur verið nokkur umfjöllun um náttúruvernd á Reykjanesskaga og er það mjög ánægjulegt. Grindavíkurbær er landmesta sveitarfélagið á Reykjanesi og eru margar af perlum svæðisins innan skip... Meira
Skoðun 16. maí 2013 11:00

Hið meinta matvælaöryggi

Því hefur verið haldið á lofti á undanförnum árum, undir forystu forsetans, að við yrðum að tryggja matvælaöryggi. Og með hverju? Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Skoðun / Endalok karlaveldisins
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000