Skoðun

Látum hjartað ráða för

Sigrún Traustadóttir skrifar

Óhætt er að segja að líf sé að færast í kosningabaráttuna vegna forsetakosninganna. Nú styttist líka í að almenningur fái að sjá og heyra frambjóðendur í sjónvarpi allra landsmanna. Halla Tómasdóttir er frambjóðandinn minn og ég hvet alla; líka þá sem segjast hafa gert upp hug sinn, að leggja sig fram um að hlusta á hvað frambjóðendur hafa að segja og velja svo. Þá segir það sögu hversu hratt fylgið færist nú til sem segir að mjög margir eru ekki enn alveg ákveðnir.

Þegar jafn mjótt er á munum og nú virðist vera milli umdeildra frambjóðenda heyrist oft að ekki megi kasta atkvæði sinu “á glæ” heldur kjósa ákveðinn aðila svo hinn komist ekki að.

Þetta eru ekki næg rök þegar kemur að því að kjósa eina fulltrúa þjóðarinnar sem við kjósum beinni kosningu. Að ætla að nýta mikilvægan kosningarétt til að koma í veg fyrir að einhver nái kjöri gæti endað með skelfingu. Við eigum að láta hjartað ráða för!

Hvernig forseta viljum við fá? Hvað á hann að standa fyrir? Er hann heill í gegn eða þurfti hann að fara sérstaklega í sparifötin, setja upp sparibrosið og tína til bestu málefnin frá hinum frambjóðendum og gera að sínum?

Halla Tómasdóttir er þroskuð, heil og hugrökk kona. Hún hefur einstakt lag á því að leiða saman aðila með ólík sjónarmið og finna málamiðlun sem allir geta sætt sig við. Hún hefur víðtæka reynslu af því m.a. að hlusta á íslenska þjóð. Ekki þarf að fara lengra aftur en að Þjóðfundinum í september 2009 sem hún ásamt fleirum, stóð fyrir. Niðurstaða þess fundar var meðal annars að þjóðin valdi sér gildið heiðarleiki sem er nákvæmlega það sem við þurfum að muna þegar kemur að forsetakosningunum.

Þegar við þreyjum próf þurfum við að lesa og læra til að standast það. Þannig á það líka að vera áður en gengið er að kjörborðinu 1. júní næstkomandi. Við þurfum að gefa okkur tíma til að kynna okkur hvern og einn frambjóðanda og helst að hitta þá og heyra tala.

Því fylgir ábyrgð að kjósa svo förum ekki með þann rétt af kæruleysi.

Verum heiðarleg og hugrökk og veljum forseta með hjartanu. Ef allir gera það, fáum við þann forseta til Bessastaða sem þjóðin mun sætta sig við.

Höfundur er stuðningsmaður Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×