Ekta amerískur Kalkúnn

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Þessi kalkúnn klikkar ekki.
Þessi kalkúnn klikkar ekki.

Best er að elda kalkúninn við 200°fyrstu 15 mínúturnar. Síða er hitinn lækkaður í 125°og kalkúnninn bakaður í þrjá tíma. Það fer eftir stærð fuglsins hve lengi þarf að elda hann og það er nauðsynlegt að nota kjarnhitamæli.

Honum er stungið í þykkasta hluta fuglsins án þess að koma við bein, og þegar mælirinn sýnir 78° er kalkúnninn tilbúinn.



Ekta amerískur Kalkúnn

Það getur verið gott að setja viskastykki bleytt í smjöri yfir fuglinn og ausa reglulega yfir það á 30 mínútna fresti.

Viskastykkið er síðan fjarlægt síðustu fimmtán mínúturnar og hitinn hækkaður í 180° til að fá fallegan gljáa.

Best er að leyfa kalkúninum að standa í fimmtán mínútur áður en hann er skorinn.



Fleiri fréttir - Jólavefur

Þú ert hér: Forsíða / Jólavefur / Ekta amerískur Kalkúnn