Innlent

Ekkert þokast í manndrápsmáli síðan í vor

Hanna Ruth Ólafsdóttir skrifar
Ekkert hefur gerst í máli Annþórs Karlssonar og Barkar Birgissonar síðan fallist var á að kalla til óháða matsmenn að utan.
Ekkert hefur gerst í máli Annþórs Karlssonar og Barkar Birgissonar síðan fallist var á að kalla til óháða matsmenn að utan. Vísir/GVA
Enn er unnið að því að fá óháða matsmenn til að bera vitni í máli Annþórs Karlssonar og Barkar Birgissonar, en þeir eru grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum að bana á Litla-Hrauni í maí 2012.

Verjendur Annþórs og Barkar fóru fram á yfirmat erlendra sérfræðinga á rannsóknarniðurstöðum Þóru Steffensen réttarmeinafræðings þar sem þeir treystu því ekki að íslenskir sérfræðingar gættu hlutlægni í málinu. Héraðsdómur Suðurlands féllst á kröfu þeirra í apríl síðastliðnum en málið hefur ekkert þokast síðan að sögn Hólmgeirs Elíasar Flosasonar, verjanda Annþórs.

Hólmgeir Elías vonast til þess að draga fari til tíðinda.

„Dómurinn er enn að vinna í að fá matsmenn, en þeir eru að líta til Norðurlandanna í þeim efnum. Þetta er orðinn langur tími og það er auðvitað slæmt að málið dregst í þetta langan tíma en ástæða dráttarins að þessu sinni er hversu langan tíma tekur að finna matsmennina. Það er engin regla um tímaramma um dómkvaðningu matsmanna, en meginreglan er að hraða málsmeðferð eftir föngum.“

Annþór og Börkur voru vistaðir á öryggisgangi á Litla-Hrauni eftir að málið kom upp, aðskildir frá öðrum föngum. Þeir eru nú á almennum gangi en þó ekki á sama gangi.


Tengdar fréttir

Skorið úr um matsmenn í máli Annþórs og Barkar

Kveðinn verður upp úrskurður í máli ákæruvaldsins gegn Annþóri Karlssyni og Berki Birgissyni í Héraðsdómi Suðurlands í dag um það hvort erlendir yfirmatsmenn komi nálægt málinu.

Vilja tvo þýska sérfræðinga sem yfirmatsmenn

"Ég lagði fram tillögur um tvo þýska sérfræðinga og gerði kröfu um að þeir yrðu dómkvaddir sem yfirmatsmenn á mat Þóru Steffensen,“ segir Hólmgeir Elías Flosason, lögmaður Annþórs Karlssonar. Fyrirtaka í máli Annþórs og Barkar fór fram í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×