Lífið

Ekkert dómaralag í úrslitum Söngvakeppninnar

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá seinna undankvöldi Söngvakeppni Sjónvarpsins í Háskólabíó í gærkvöldi.
Frá seinna undankvöldi Söngvakeppni Sjónvarpsins í Háskólabíó í gærkvöldi. Vísir/Pressphotos.biz
Ekkert dómaralag verður í úrslitum Söngvakeppni Sjónvarpsins næstkomandi laugardag. Seinna undankvöldið fór fram í Háskólabíó í gærkvöldi en þar völdu áhorfendur lögin Augnablik, Á ný og Spring yfir heiminn í úrslitin. Á fyrra undankvöldinu voru lögin Raddir, Hugur minn er og Óstöðvandi valin í úrslitin.

Sex lög keppa því til úrslita en í reglum Söngvakeppninnar kemur fram að sérstök dómnefnd, sem skipuð er af Ríkisútvarpinu, hafi möguleika á að hleypa sjöunda laginu áfram í úrslitin, telji hún það eiga sérstakt erindi þangað. 

Það varð hins vegar ekki raunin að sögn Heru Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Söngvakeppninnar. 

„Ef það hefði verið valið, þá hefði það verið tilkynnt í gær. Það var í raun og veru ekki talin ástæða til að velja það. Það mun standa svona að það verða sex lög sem keppa í úrslitunum,“ segir Hera.

Leggja lokahönd á val dómnefndar

Hún segir RÚV vera að leggja lokahönd á val dómnefndarinnar sem mun hafa fimmtíu prósenta vægi á móti símakosningu almennings á úrslitakvöldinu. Tvö efstu lögin, sem hljóta flest atkvæði frá dómnefnd og almenningi, mætast svo í einvígi þar sem hrein símakosning almennings ræður því hvort þeirra verður framlag Íslands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, sem fer fram í Stokkhólmi í Svíþjóð í maí næstkomandi.

Í reglum Söngvakeppninnar kemur fram að RÚV skipar fimm manna dómnefnd sem starfar aðeins á úrslitakvöldi Söngvakeppninnar. Í henni mun sitja fagfólk sem sérhæfingu á sviði tónlistar, svo sem laga- eða textahöfundar, söngvarar, upptökustjórar, plötusnúðar eða aðrir sem hafa atvinnu af tónlist eða tónlistarsköpun. Skal gæta jafnvægi í kynjahlutföllum, aldri og bakgrunni þeirra sem sitja í dómnefnd.

Fresturinn rann út í gærkvöldi

Þá kemur fram að fulltrúar í dómnefnd megi ekki hafa náin tengsl við höfunda eða flytjendur og ekki hafna unnið að gerð þeirra laga sem keppa til úrslita í Söngvakeppninni. Þá kemur fram í reglum Söngvakeppninnar að nöfn dómnefndarmanna skuli verða gerð opinber í síðasta lagi viku fyrir úrslitakvöldið en fresturinn rann út í gærkvöldi.

Niðurstöður dómnefndar og símakosningar gerðar opinberar

Hera segir nöfn dómnefndarmanna eiga að liggja fyrir annað hvort á mánudag eða þriðjudag en verið sé að gera örlitla breytingu á fyrirkomulagi dómnefndarinnar. Í fyrra var voru nöfn dómnefndarinnar opinberuð í fyrsta skiptið í Söngvakeppninni og þá voru einnig niðurstöður hennar og símakosningarinnar gerðar opinberar. Hera segir sama fyrirkomulag verða í ár.

Í fyrra valdi dómnefndin Milljón augnablik í flutningi Hauks Heiðars Haukssonar í úrslit Söngvakeppninnar. 2014 valdi dómnefndin lagið Lífið kviknar á ný í flutningi Sigríðar Eyrúnar Friðriksdóttur í úrslitin. Bæði lög voru eftir Karl Olgeirsson. 


Tengdar fréttir

Söngvakeppnin brýtur eigin reglur

Nöfn dómnefndarmanna áttu að vera opinber viku fyrir úrslitin - Leynidómnefndin sem valdi lag í úrslitin fæst ekki opinberuð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×