Erlent

Einn lést í skotárás á spítala í Bandaríkjunum

Bjarki Ármannsson skrifar
Maðurinn sem hleypti af skotum á geðdeild Mercy Fitzgerald-spítalans er sjálfur illa slasaður.
Maðurinn sem hleypti af skotum á geðdeild Mercy Fitzgerald-spítalans er sjálfur illa slasaður. Vísir/AP
Einn starfsmaður lést þegar maður hóf skotárás á geðdeild spítala í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Árásarmaðurinn slasaðist illa, en hann var skotinn nokkrum sinnum af lækni á geðdeildinni og svo yfirbugaður af öðrum starfsmönnum.

Ekki liggur fyrir hvað leiddi til árásarinnar og er málið enn til rannsóknar. Atvikið átti sér stað á Mercy Fitzgerald-spítalanum í bænum Darby fyrir utan borgina Fíladelfíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×