Sport

Einar: Maður spyr sig hvernig við náðum öllum þessum árangri

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Einar Þorvarðarson er ánægður með aukið framlag ríkisins.
Einar Þorvarðarson er ánægður með aukið framlag ríkisins. vísir/pjetur
„Ég er mjög ánægður með þetta. Þetta er það sem íþróttahreyfingin hefur verið að reyna að koma á framfæri í mörg ár.“

Þetta segir Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, við Vísi um stóraukið framlag ríkissins til afrekssjóð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Í gær var kynnt bylting í framlagi ríkissins til afrekssjóðs en það fer úr 100 milljónum króna í 200 milljónir á næsta ári og hækkar svo um 100 milljónir á ári í tvö ár en samningurinn er til þriggja ára. Heildarframlag ríkissins til afrekssjóðs árið 2019 verður því 400 milljónir króna.

Sjá einnig:Íslenskar íþróttir öðlast nýtt líf

„Þarna má segja að komin sé mikil hugarfarsbreyting sem gerir það að verkum að afreksíþróttir á Íslandi geta haft aðstöðu og undirbúið sig enn betur en áður hefur verið,“ segir Einar, en afrekssóður hefur aðeins náð utan fjórðung rekstursins hjá HSÍ, svo dæmi sé tekið.

„Þetta er mikil breyting. Sérsamböndin hafa náð að vinna þetta með samstarfsaðilum sínum. HSÍ fær 25 prósent af styrkjum sambandsins frá afrekssjóði, Lottó og þessum ríkisstyrkjum. Þetta hafa verið í kringum 50 milljónir á ári en við þurfum að búa til 75 prósent af þessu og reikningurinn er um 200 milljónir,“ segir Einar.

„Nú er verið að tryggja stöðugleika í starfinu og breytir þeirri mynd algjörlega. Á síðasta ári vorum við komnir á góðan stað en þessi aðlögun er mikilvæg og algjörlega frábær.“

Sjá einnig:Ragna: Ákveðin í því að halda áfram þrátt fyrir að lifa nánast eins og munkur

Einar, sem hefur verið tengdur íþróttunum í áratugi sem leikmaður, þjálfari og forsvarsmaður, fagnar þessari vakningu ríkisins. Árangur undanfarinna ára hefur vakið verðskuldaða athygli og nú er íþróttalífið að uppskera.

„Við í handboltanum erum að fara á 20. stórmótið okkar frá árinu 2000. Fótboltinn náði auðvitað frábærum árangri sem og karfan og svo erum við að gera flotta hluti í einstaklingsíþróttum eins og sundi og frjálsum. Maður spyr sig bara hvernig fórum við að þessu miðað við fjármagnið sem hefur verið,“ segir Einar.

„Þetta er viðurkenning fyrir starfið okkar allra en fyrst og fremst eru þeir sem taka þessa ákvörðun búnir að skoða málin mjög vel með ÍSÍ og hafa séð staðreyndirnar. Það ber að fagna þessu,“ segir Einar Þorvarðarson.


Tengdar fréttir

Íslenskar íþróttir öðlast nýtt líf

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands undirrituðu í gær tímamótasamning um að fjórfalda fjárframlag ríkisins til afreksíþrótta á Íslandi næstu þrjú árin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×