Viðskipti innlent

Eimskip fer fram á að viðskipti með bréf félagsins verði skoðuð

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Eimskip hefur kært leka á trúnaðargögnum til lögreglu.
Eimskip hefur kært leka á trúnaðargögnum til lögreglu. Vísir/GVA
Eimskipafélag Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem Kauphöll Íslands hefur athugunarmerkt hlutabréf fyrirtækisins vegna fjölmiðlaumfjöllunar um meint samkeppnisbrot fyrirtækisins.

Í tilkynningunni kemur fram að félagið hafi kært leka á trúnaðargögnum til lögreglu þar sem leki á gögnum skráðra félaga varðar við lög um verðbréfaviðskipti.

Þá hefur Eimskipafélagið farið fram á það við Kauphöll Íslands og Fjármálaeftirlitið að viðskipti með bréf félagsins síðan greint var í fjölmiðlum frá rannsókn Samkeppniseftirlitsins, verði skoðuð sérstaklega. Fram hefur komið að hlutabréfa í fyrirtækinu hafi lækkað nokkuð í verði frá því að umfjöllunin hófst.

Í tilkynningu frá félaginu er farið nokkuð ítarlega yfir málsatvik og stöðu rannsóknar Samkeppniseftirlitsins. Tilkynninguna má sjá í heild hér að neðan.

Athugunarmerki Kauphallar Íslands

Í ljósi þess að Kauphöll Íslands hefur athugunarmerkt hlutabréf Eimskipafélags Íslands, vegna leka á gögnum til fréttaskýringaþáttarins Kastljóss er tengjast rannsókn Samkeppniseftirlitsins, vill félagið koma eftirfarandi á framfæri m.v.t greinar 2.4 í reglum Kauphallarinnar fyrir útgefendur.

Upplýsingaleki

Leki á rannsóknargögnunum, og fjölmiðlaumræða í kjölfar hans, hefur nú þegar valdið hluthöfum félagsins tjóni. Þá hefur lekinn skaðað ímynd félagsins bæði hérlendis og erlendis.

Leki á trúnaðargögnum skráðra félaga varðar við lög um verðbréfaviðskipti. Eimskipafélagið hefur nú óskað eftir því við Kauphöll Íslands og Fjármálaeftirlitið að skoðuð verði viðskipti með bréf félagsins á þeim tíma sem það hefur verið til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Jafnframt hefur félagið kært lekann til lögreglu.

Eins og fram hefur komið hefur félagið ítrekað óskað eftir afriti af húsleitarbeiðni Samkeppniseftirlitsins, frá 9. september 2013, ásamt fylgiskjölum, m.a. með kærum til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Af umfjöllun Kastljóss má ráða að starfsmenn Kastljóss séu með kæru Samkeppniseftirlitsins til Sérstaks saksóknara undir höndum. Eimskip hefur þau gögn eðlilega ekki undir höndum þar sem rannsókn Samkeppniseftirlitsins er ólokið. Hins vegar hefur félagið í kjölfar umræðunnar óskað eftir afriti af þeim gögnum sem Kastljós hefur undir höndum.

Málsatvik

Þann 10. september 2013 tilkynnti Eimskip að Samkeppniseftirlitinu hefði verið veitt heimild til húsleitar á starfstöðvum Eimskipafélags Íslands hf. og hjá dótturfélögunum Eimskip Ísland ehf. og TVG Zimsen ehf. Fram kom að húsleitin væri gerð vegna rannsóknar á ætluðum brotum á 10. og 11. gr. samkeppnislaga. Þann sama dag óskaði félagið eftir afriti af  húsleitarbeiðninni ásamt fylgiskjölum. Þeirri beiðni var hafnað af Samkeppniseftirlitinu.

Rétt er að geta þess að ákvæði 10. gr. samkeppnislaga hefur að geyma bann við samráði keppinauta. Brot gegn 10. gr. getur varðað við ábyrgð fyrirtækja og einstaklinga skv. 37. og 41. gr. a. samkeppnislaga. Af því leiðir að þáttur einstaklinga hlýtur að koma til skoðunar í tengslum við rannsókn á meintum brotum gegn 10. gr. Hins vegar varða ákvæði 11. gr. samkeppnislaga við misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Brot gegn 11. gr. varðar eingöngu við ábyrgð fyrirtækja, skv. 37. gr. samkeppnislaga. Þáttur einstaklinga kemur því ekki til skoðunar við rannsókn á meintum brotum gegn 11. gr.

Þann 6. janúar 2014 tilkynnti Eimskip að áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefði  ógilt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að synja Eimskip aðgangi að umbeðnum gögnum málsins og lagði fyrir eftirlitið að taka á ný afstöðu til beiðnar félagsins um aðgang að gögnunum.

Þann 3. júní 2014 tilkynnti Eimskip að Samkeppniseftirlitið hefði aflað frekari gagna hjá félaginu á grundvelli úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur. Fram kom að beiðnin tengdist beiðni Samkeppniseftirlitsins frá 10. september 2013. Á sama tíma afhenti Samkeppniseftirlitið húsleitarbeiðni ásamt fylgiskjali í samræmi við úrskurð áfrýjunarnefndar. Í gögnunum sem voru afhent voru helstu upplýsingar afmáðar og vörpuðu því ekki frekara ljós á tildrög rannsóknarinnar. Vegna þeirra takmörkuðu upplýsinga sem Samkeppniseftirlitið veitti þann 3. júní sl. kærði félagið afhendingu hinna afmáðu gagna til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Samkeppniseftirlitið upplýsti félagið jafnframt um að það hefði talið sér skylt að beina kæru formlega til Sérstaks saksóknara. Hafi það verið gert með bréfi 21. mars 2014. Við upphaf húsleitar þann 3. júní sl. óskaði félagið eftir upplýsingum um þá einstaklinga sem um ræðir og var þeirri beiðni hafnað. Félagið hafði því ekki forsendur til þess að leggja mat á og tilkynna um kæru eftirlitsins til Sérstaks saksóknara, umfram það sem fólst í tilkynningu félagsins þann 10. september 2013. Þær upplýsingar sem félaginu  bárust þann 3. júní sl. bættu því engu við um það sem áður hafði verið tilkynnt, þ.e. að meint brot á ákvæðum 10. og 11. gr. samkeppnislaga væru til rannsóknar, sem getur eins og áður segir varðað við ábyrgð einstaklinga og félagsins.

Þann 30. september sl. tilkynnti félagið að áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefði fellt úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 3. júní sl. að hluta og lagt fyrir eftirlitið að afhenda félaginu hluta umbeðinna gagna innan tveggja vikna. Félaginu bárust gögnin þann 8. október sl. og vörpuðu þau ekki frekara ljósi á grundvöll málsins. Rétt er að geta þess að enn er hluti gagnanna afmáður.

Í Kastljósi RÚV þann 14. október sl. var fjallað um rannsókn Samkeppniseftirlitisins á meintum brotum Eimskips á 10. og 11. gr. samkeppnislaga. Í umfjöllunni var vísað í tiltekin rannsóknargögn Samkeppniseftirlitisins. Í umfjölluninni var fullyrt að Samkeppniseftirlitið hefði kært forstjóra og ótilgreinda starfsmenn félagsins til Sérstaks saksóknara fyrir meint brot á 10. gr. samkeppnislaga.

Eimskip birti fréttatilkynningu að kvöldi 14. október sl. þar sem fram kom að í umfjöllun RÚV væri vísað til kæru Samkeppniseftirlitsins til Sérstaks saksóknara. Jafnframt upplýsti félagið að það hefði kæruna ekki undir höndum og gæti því hvorki upplýst um efni hennar, né að hvaða einstaklingum hún beinist. Þá sagði að ljóst mætti vera af umfjöllun RÚV að fjölmiðillinn væri með mun ítarlegri upplýsingar um rannsókn málsins en félagið sjálft.

Staða rannsóknarinnar

Þann 15. október 2014 birti Samkeppniseftirlitið yfirlýsingu á heimasíðu sinni þar sem m.a. segir orðrétt:

„Samkeppniseftirlitið mun ekki verða við beiðnum fjölmiðla um aðgang að gögnum málsins. Jafnframt er eftirlitið ekki reiðubúið að staðfesta þá umfjöllun sem fram kom í Kastljósi í gærkvöldi. Þá skal sérstaklega tekið fram að rannsókn málsins er ekki komin á það stig að unnt sé að slá neinu föstu um niðurstöður hennar. Rannsókninni miðar vel en mikil vinna er óunnin við greiningu gagna og vísbendinga.“

Í Morgunblaðinu þann 17. október sl. er fjallað um rannsókn Samkeppniseftirlitsins á ætluðum samkeppnislagabrotum skipafélaga. Þar er m.a. haft eftir Ólafi Haukssyni, sérstökum saksóknara:

„Rannsókn í þessu tiltekna máli er ekki hafin hjá okkur. Almennt get ég sagt, að þegar okkur berast kærur, þá setjum við þær í svokallaða greiningu, sem snýr þá að því hvort rétt sé að hefja rannsókn, eða ekki vegna þess að það eitt og sér getur verið íþyngjandi fyrir þá sem kæran beinist að. Þegar greiningin liggur fyrir, þá er annaðhvort metið hvort málið sé brýnt og þurfi strax að hefja rannsókn, eða hvort málið þoli bið, eða verði jafnvel vísað frá. Það er í raun ekki fyrr en búið er að úthluta máli inn í rannsóknarhóp, sem eiginleg rannsókn hefst, ef hún á annað borð hefst. Í tilfelli kærunnar frá Samkeppniseftirlitinu hefur málinu ekki verið úthlutað í rannsóknarhóp.“

Með hliðsjón af fréttatilkynningu Samkeppniseftirlitsins og þess sem haft er eftir Sérstökum saksóknara er ljóst að umfjöllun Kastljóss er ótímabær og til þess fallin að villa um fyrir almenningi. Samkeppniseftirlitið kveður rannsókn málsins ekki vera komna á það stig að unnt sé að slá neinu föstu um niðurstöður hennar. Þá hefur Sérstakur saksóknari staðfest að rannsókn á málinu sé ekki hafin hjá embættinu.

Viðbrögð félagsins við lekanum

Félagið hefur farið ítarlega yfir öll gögn sem það hefur undir höndum. Sú yfirferð hefur ekki varpað frekara ljósi á grundvöll málsins. Að mati félagsins koma engar nýjar upplýsingar, umfram það sem áður hefur verið tilkynnt, fram í umfjöllun Kastljóss, þ.e. að félagið sæti rannsókn vegna  meintra brota á 10. og 11. gr. samkeppnislaga. Eins og áður segir felst það í rannsókn á mögulegum brotum á 10. gr. samkeppnislaga að þáttur einstaklinga verði skoðaður.

Eimskip upplýsti þann 16. október sl. að það hefði í framhaldi af leka trúnaðargagna til Kastljóss ákveðið að grípa til eftirtalinna ráðstafana:

Senda Fjármálaeftirlitinu og Kauphöll Íslands ábendingu um möguleg lögbrot.

Senda Samkeppniseftirlitinu og Sérstökum saksóknara bréf og krefjast þess að fá afhent gögn sem tengjast umfjöllun Kastljóss.

Kæra leka á trúnaðargögnum málsins til lögreglu.

Alvarleiki lekans og umfjöllunar Kastljóss verður enn ljósari með ósk Samkeppniseftirlitsins um opinbera rannsókn á málinu þann 17. október sl. Með ósk sinni um rannsókn virðist Samkeppniseftirlitið telja að mögulegt sé að með lekanum hafi verið brotið gegn þagnarskyldákvæðum laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, ákvæðum almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sem og ákvæðum laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Félagið mun, hér eftir sem hingað til, upplýsa almenning um framgang rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á meintum brotum félagsins um leið og þær liggja fyrir.

Eimskipafélag Íslands hafnar með öllu ásökunum um að hafa gerst brotlegt gegn ákvæðum samkeppnislaga. Þá er það von félagsins að rannsókn á því hvernig áðurnefnd trúnaðargögn komust í hendur óviðkomandi upplýsist sem fyrst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×