Lífið

Eigum erindi út fyrir 101

Viðar Þorsteinsson og Brot af Nýhil. Viðar segir samninginn við Landsbankann hjálpa Nýhil að starfa áfram sem grasrótarhreyfing.
Viðar Þorsteinsson og Brot af Nýhil. Viðar segir samninginn við Landsbankann hjálpa Nýhil að starfa áfram sem grasrótarhreyfing.

Landsbanki Ísland og grasrótarhreyfingin Nýhil hafa handsalað samning um að bankinn kaupi tæplega 1200 bækur úr ritröðinni Norrænar bókmenntir sem kemur út innan skamms. Bækurnar hefur bankinn hugsað sér að gefa öllum bókasöfnum í framhaldsskólum og á landsbyggðinni.

"Við erum hæstánægð með þennan samning," segir Þór Stein­­ars­­son, markaðsstjóri Nýhil. "Þetta er stór hluti af upplaginu og gefur okkur þannig ágætt svigrúm."

Félagsskapurinn hefur hingað til verið eins konar regnhlíf fyrir sjálfsútgáfu en til stendur að taka útgáfuna fastari tökum. Viðar Þorsteinsson, einn af forsvarsmönnum félagsskaparins, segir Nýhil þó ekki vera að breytast í formlegt útgáfufélag.

"Þessi samningur hjálpar okkur einmitt að starfa áfram sem grasrótar- og framúrstefnuhreyfing, sem hafa almennt ekki jafn mikla dreifingar- og sölumöguleika og hefðbundin forlög."

Viðar kveðst afar ánægður með að Landsbankinn ætli að gefa bækurnar bókasöfnum úti á landi því hingað til hefur sala á bókum Nýhil verið bundin við kaffihús og bari í miðborg Reykjavíkur.

"Oft er talað um gjá milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarinnar en Nýhil á erindi við alla Íslendinga, hvort sem er úti á landi eða í 101 Reykjavík. Það er hins vegar margt sem gerir það erfitt að brúa bilið þarna á milli, til dæmis er það sem við erum að gera ekki ofarlega á forgangslista minni bókasafna með takmörkuð fjárráð. Þessi samningur gerir okkur því kleift að ná til fleiri."

Viðar viðurkennir að það sé fólgin viss mótsögn í því að grasrótarhreyfing reiði sig á fjármálafyrirtæki til að halda sér við. "Það er að vissu leyti einkenni á okkar samtíma. Íslensk grasrótarlist verður sífellt háðari stór­fyrirtækjum, Klink og Bank er besta dæmið um það. Á meðan ríkið sinnir þessum geira ekki hafa fjármálafyrirtæki áttað sig á að það er heilmikið vit í því að styrkja grasrótarlist. Þótt við deilum ekki endilega markmiðum og hugmyndum þessara stofnana getum við nýtt okkur þá hagsmuni sem fara saman," segir Viðar.

"Það getur vissulega verið áhættusamt og hvort þetta dragi úr okkur tennurnar eða ekki verður tíminn að leiða í ljós." Ritröðin Norrænar bókmenntir samanstendur af níu ljóðabókum jafnmargra skálda og kemur út í tvennu lagi. Fyrstu fjórar bækurnar koma út í þessum mánuði en hinar fimm í apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×