Enski boltinn

Eiður spilaði í 75 mínútur með Bolton

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Eiður Smári Guðjohnsen spilaði vináttuleik með Bolton sem fór fram fyrir luktum dyrum í dag. Bolton tapaði þá fyrir grannliðinu Bury, 3-1.

Eiður Smári er án félags og hefur æft með Bolton síðustu daga. Neil Lennon, stjóri Bolton, hefur talað lofsamlega um Eið Smára og mögulegt að félagið semji við hann.

Eiður Smári kom fyrst til Bolton árið 1998 og sló í gegn með liðinu. Hann var svo seldur til Chelsea sumarið 2000 fyrir fjórar milljónir punda.

Eiður mun spila annan leik með Bolton í næstu viku en Lennon viðurkenndi eftir leikinn í dag að önnur félög gæti mögulega haft áhuga á honum.

„Það kæmi mér ekki á óvart,“ sagði Lennon. „Mér finnst mikið til þess eins koma að hann vilji spila áfram. Hann tók sér smá hlé og lítur vel út. Hann hefur aðlagast leikmannahópnum mjög vel.“

Lennon sagði að viðræður stjórnarformannsins Phil Gartside við Eið Smára um launakröfur kappans hafi gengið vandræðalaust fyrir sig. Hann bætti við að hann vildi sjá Eið Smára spila í 90 mínútur áður en ákvörðun yrði tekin um framhaldið.

„Þar til að maður sér hann í slíkum aðstæðum veit maður í raun ekki í hvernig standi hann er í. Við þurfum bara að sjá hann spila fótbolta. En hann hefur gert allt það sem við höfum beðið hann um að gera hingað til.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×