Golf

Egill Ragnar tryggði sér sæti í landsliðinu með sigri á úrtökumóti

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Egill Ragnar Gunnarsson sveiflar kylfunni á Korpunni.
Egill Ragnar Gunnarsson sveiflar kylfunni á Korpunni. mynd/seth/golf.is
Egill Ragnar Gunnarsson, kylfingur úr GKG, tryggði sér sæti í A-landsliði Íslands fyrir Evrópumótið sem fram fer í Lúxemborg í júlí.

Egill vann úrtökumót sem landsliðsþjálfararnir Úlfar Jónsson og Birgir Leifur Hafþórsson stóðu fyrir en leikið var á Korpúlfsstaðavelli. Fimmtán kylfingum var boðið og náðu tólf að klára.

Þessi tvítugi kylfingur fór hringina fjóra á níu höggum undir pari vallarins en bent er á í frétt Golf.is að Birgir Leifur fór sjálfur fjóra hringi á tíu höggum undir pari þegar hann varð Íslandsmeistari í höggleik á Korpunni fyrir þremur árum.

„Þetta er gríðarlega góð tilfinning og það hefur allt smollið saman í leik mínum að undanförnu,“ sagði Egill Ragnar í viðtali við Golf.is en sigur hans var öruggur. Næsti maður, Gísli Sveinbergsson úr GK spilaði á fjórum höggum undir pari.

A-landslið karla leikur í 2. deild á Evrópumeistaramótinu í Lúxemborg dagana 6.-9. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×