Eggert feldskeri valinn iðnaðarmaður ársins Haraldur Guðmundsson skrifar 3. febrúar 2014 09:10 Forseti Íslands hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Elsa Haraldsdóttir, formaður IMFR, afhentu Eggerti verðlaunin. Mynd/Bára Kristinsdóttir.
Eggert Jóhannsson, feldskeri var heiðraður sem iðnaðarmaður ársins á föstudag þegar Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík hélt áttundu verðlaunahátíð sína til heiðurs tuttugu nýsveinum sem luku burtfararprófi í iðngreinum með afburðaárangri árið 2013. Í tilkynningu segir að verðlaunin séu veitt þeim iðnaðarmanni sem hefur með verkum sínum vakið athygli fyrir framúrskarandi vinnubrögð og nýjungar sem aukið hafa hróður greinarinnar, bæði heima og erlendis. „Eggert var á nemasamning í tvö ár hjá Jack Marcel feldskera í London. Eftir það hélt hann til Svíþjóðar og lærði við Körsnarsskolan í Tranås og vann þar fyrir Doris Stille, sem var fyrst kvenna til að hljóta meistaratitilinn í feldskurði. Þá lá leið hans til Malmö þar sem hann hóf störf fyrir Lars åke Hankell feldskurðarmeistara. Árið 1977 sneri hann aftur til Íslands og stofnaði fljótlega verkstæði og verslun í Reykjavík. Fyrsta flíkin sem hann hannaði og seldi hér á landi var mokkajakki úr lambskinni og var hann í eigu Rannveigar Guðmundsdóttur, fyrrverandi alþingismanns. Þessi stórglæsilega flík er nú í eigu Þjóðminjasafnsins og er ( eða verður) til sýnis þar. Einungis ári eftir að hann flytur heim, hóf hann að framleiða fyrir alþjóðlegan markað í kjölfar stórrar pöntunar frá Noregi. Síðan þá hafa verk hans vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi og má þar nefna vörulínur eins og Born again, surf and turf og ocean leather sem eru dæmi um fulla nýtingu náttúrulegra hráefna sem eru sérvalin og bera vott um fallega hönnun, gott handbragð og fjölbreytni í feldum. Hann ber mikla virðingu fyrir nátturunni og hefur að leiðarljósi samspil manns og náttúru í sköpun sinni. Síðastliðinn áratug hefur hann verið virkur meðlimur í alþjóðasamtökum loðskinnaiðnaðarins og setið þar í nefndum sem fjalla um nátturu og dýravernd. Fyrir þremur árum hóf Eggert samstarf við Anderson og Sheppard um smávöru en framleiðir og hannar nú alla skinnavöru fyrir Anderson og Sheppard en þeir hafa í rúma öld verið í fremstu röð klæðskera Lundúna," segir í tilkynningunni.
Mest lesið „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Atvinnulíf Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Viðskipti innlent Sofnar í leikhúsi, á tónleikum, í kirkjum og fleiri stöðum Atvinnulíf Mál tengd Base Parking á borði Neytendasamtakanna í hverjum mánuði Neytendur Deilur og leiðindi við vinnufélaga og góð ráð Atvinnulíf Landsbankinn lækkar vexti Neytendur 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Viðskipti innlent „Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Viðskipti innlent Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur Viðskipti innlent Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engin löndun í bili í Grindavík Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Kvika tók kipp Kaupin á Lyfju krefjast að óbreyttu íhlutunar Samkeppniseftirlitsins „Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Forstjóraskipti hjá Play Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Ríkiskaup lögð niður og verkefnin flutt til Fjársýslunnar Ráðinn nýr hagfræðingur ÖBÍ Ríflega helmingur vill ekki skipta við Rapyd Múlakaffi opnar dyrnar í Sjálandi Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið Fékk greiddar um tíu milljónir í viðbótarlaun Miðaldra reka lestina í framtalsskilum Gjaldþrot N4 nam 89 milljónum króna Sigríður Lovísa hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri VR Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálakerfið standi traustum fótum Opna pílu- og veitingastað á gamla Stjörnutorgi Gefur ekki fimm aura fyrir gagnrýni á Krónuna Eik var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns og slítur samstarfi Forstjóraskipti hjá Origo Stefna á skráningu í Kauphöll á næstu mánuðum SFF fá nýtt nafn en verða áfram SFF Sjá meira