Golf

Draumabyrjun Bandaríkjanna í Ryder-bikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Bandaríkin fer afar vel af stað í Ryder-bikarnum en keppni hófst í Minnesota í dag.

Bandaríska liðið vann allar viðureignir sínar í fjórmenningi en þeir Jordan Spieth og Patrick Reed gáfu tóninn með því að vinna Justin Rose og Henrik Stenson á sextándu holu.

Þetta er í fyrsta sinn síðan 1981 að bandaríska liðið sópar því evrópska í fjórmenningi á fyrsta keppnisdegi og ljóst að það verður að brattann að sækja fyrir Evrópu.

Það er þó nóg eftir en 24 stig eru enn eftir í pottinum. Evrópa hefur unnið síðustu þrjár Ryder-keppnir.

Keppni heldur áfram en keppt er í fjórbolta í kvöld. Sýnt er beint frá mótinu á Golfstöðinni.

Úrslit í fjórmenningi:

Spieth/Reed unnu Rose/Stenson, 3&2

Mickelson/Fowler unnu McIlroy/Sullivan, 1&0

Walker/Z Johnson unnu Garcia/Kaymer, 4&2

D Johnson/Kuchar unnu Pieters/Westwood, 5&4

Liðin í fjórbolta:

Spieth/Reed gegn Rose/Stenson

JB Holmes/Moore gegn Garcia/Cabrera-Bello

Snedeker/Koepka gegn Kaymer/Willett

D Johnson/Kuchar gegn McIlroy/Pieters




Fleiri fréttir

Sjá meira


×