Innlent

Dóttir Annþórs í skýjunum: „Pabbi minn er enginn morðingi“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson hafa verið sýknaðir af ákæru um að hafa með stórfelldri líkamsárás orðið valdur að dauða samfanga síns. Saksóknari hafði farið fram á tólf ára fangelsi yfir þeim. Íslenska ríkið þarf að greiða allan málsvarnarkostnað sem nemur rúmum 30 milljónum króna. Dóttir Annþórs fagnar niðurstöðuna og segist alltaf hafa verið viss um sakleysi hans. Pabbi hennar sé enginn morðingi.

Tæplega fjögur ár eru síðan Sigurður Hólm Sigurðsson fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni. Myndbandsupptökur sýndu Annþór og Börk fara inn í klefa hans skömmu áður en hans fannst látinn. Dánarorsökin var innvortisblæðingar vegna rofins milta. Ákæruvaldið taldi áverkana til komna vegna líkamsárásar Annþórs og Barkar. Þeir hafa hins vegar ávallt neitað sök.

Fjölskipaður Héraðsdómur Suðurlands komst að þeirri niðurstöðu í dag að sýkna skildi Annþór og Börk þarf sem mikill vafi léki á sekt þeirra. Enginn vitni voru að dauða Sigurðar og sömuleiðis taldi dómurinn ekki útilokað að einhver annar hefði getað veitt Sigurði áverka sem leiddu til dauða hans.

Verjendur þeirra Annþórs og Barkar, Sveinn Guðmundsson og Hólmgeir Elías Flosason, voru sammála um að engin önnur niðurstaða hefði getað komið til greina. Aldrei hafi átt að gefa út ákæru í málinu.

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um það hvort málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar.

Hvorki Annþór né Börkur voru viðstaddir dómsuppkvaðninguna í héraði í dag og raunar enginn að frátöldum fjölmiðlamönnum og lögfræðingum. Dóttir Annþórs, Sara Lind renndi í hlað rétt eftir að dómur hafði verið upp kveðinn og var skiljanlega ánægð með niðurstöðuna.

„Já, mjög glöð. Ég vissi þetta allan tímann. Kom mér ekkert á óvart. Pabbi minn er enginn morðingi. Hann myndi ekki gera svona,“ segir Sara Lind Annþórsdóttir, dóttir annars sakborningana, en hún ætlar að heimsækja föður sinn eins fljótt og unnt er.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×