Viðskipti innlent

Dohop valinn besti flugleitarvefur heims

Sæunn Gísladóttir skrifar
Davíð Gunnarsson framkvæmdastjóri Dohop.
Davíð Gunnarsson framkvæmdastjóri Dohop. vísir/anton brink
Vefur íslenska fyrirtækisins Dohop hefur verið kjörinn “Besti flugleitarvefur heims” (e. World's Leading Flight Comparison Website 2016) af World Travel Awards þetta árið. Dohop vann verðlaunin einnig 2014 segir í tilkynningu.

Dohop var stofnað í Reykjavík árið 2004 og hefur alla tíð haft höfuðstöðvar í Reykjavík. Með sigrinum telst Dohop vera í hópi stærstu fyrirtækja heims í ferðageiranum; fyrirtæki á borð við Lufthansa, Hertz, Hilton og Expedia. Dohop er jafnframt eina íslenska fyrirtækið sem tilnefnt hefur verið til lokaverðlauna World Travel Awards.

Fyrr á þessu ári var fyrirtækið valið Nýsköpunarverðlaun Íslands 2016 af Rannís, Íslandsstofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins.

Dohop hlaut einnig tilnefningu World Travel Awards sem “Besta tæknilausnin í ferðaiðnaðinum”, (e. World’s Leading Travel Technology Provider 2016) en vann ekki.

Í byrjun árs gjörbreytti Dohop vörumerki sínu og setti nýja útgáfu af vefnum í loftið. Fyrirtækið hefur einnig bætt mikið við tæknina á árinu; til að mynda með verðdagatali og verðvernd í samstarfi við fyrirtækið FLYR. Hönnun nýja vörumerkis Dohop var í höndum sænsku hönnunarstofunnar Bedow.

„Það er frábært fyrir okkur að fá þessi verðlaun. Þetta er fjórða árið í röð sem við erum tilnefnd besta flugleitarvél í heimi og það undirstrikar þá miklu vinnu sem hefur farið í vefinn og tæknina undanfarin misseri,” segir Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop.

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×