Golf

Day og Palmer efstir á Deutsche Bank Championship eftir tvo hringi

Jason Day lék vel í gær.
Jason Day lék vel í gær. AP/Getty
Jason Day og Ryan Palmer leiða á Deutsche Bank Championship þegar mótið er hálfnað en þeir eru á átta höggum undir pari eftir tvo hringi.

Billy Horschel og hinn reynslumikli Matt Kuchar eru jafnir í þriðja sæti á sjö höggum undir en margir kylfingar koma þar á eftir á fimm og sex höggum undir pari, þar á meðal Jordan Spieth, Martin Kaymer og Keegan Bradley.

Það má því gera ráð fyrir spennandi lokahringjum í kvöld og á morgun á hinum glæsilega TPC Boston velli en Rory McIlroy er á þremur höggum undir pari og gæti hæglega blandað sér í baráttu efstu manna með góðum þriðja hring.

Þá þurfa þeir Bubba Watson og Phil Mickelson að spýta í lófana en þeir eru báðir á einu höggi yfir pari eftir tvo hringi.

Þriðji hringur á Deutsche Bank Championship verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:00 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×