Golf

Day gaf blaðamanni föt

Day með bikarinn eftir PGA-meistaramótið.
Day með bikarinn eftir PGA-meistaramótið. vísir/getty
Jason Day er uppáhald flestra þessa dagana enda virðist einstakt ljúfmenni þar á ferð.

Eftir að Day tryggði sér sigurinn á PGA-meistaramótinu hafa komið fram sögur um ævintýralega leið hans á toppinn. Faðir hans dó snemma, hann hefði getað lent í miklum ógöngum og ólst upp í mikilli fátækt. Erfitt líf.

Day raðar inn punktum hjá almenningi og nýjasta sagan á ekki eftir að gera annað en að auka vinsældir hans.

Day hafði tekið eftir því að einn blaðamaðurinn sem mætir á öll golfmót var alltaf í sömu pólobolunum. Þetta var duglegur blaðamaður sem hefur lítið á milli handanna.

Einn daginn spurði Day hann út í hvað hann ætti margar boli? Blaðamaðurinn sagðist eiga sjö. Einn fyrir hvern dag vikunnar. Day bað hann að hitta sig nokkrum dögum síðar.

Er þeir hittust var Day tilbúinn með 40 póloboli. Boli sem hann átti áður en hann fékk nýjan styrktaraðila. Hann gat því ekki keppt lengur í þessum bolum. Hann gaf blaðamanninum þá alla við mikla ánægju blaðamannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×