Golf

Day ekki viss um að hann fari til Ríó

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jason Day,
Jason Day, vísir/epa
Íþróttamenn eru þegar farnir að draga sig úr keppni á ÓL í Ríó af ótta við Zika-veiruna.

Kylfingurinn Rory McIlroy hefur þegar gefið út að hann fari ekki og Jason Day er að skoða málið.

Day, sem er efstur á heimslista kylfinga, segist ætla að ræða málið við fjölskyldu sína áður en hann tekur ákvörðun um hvort hann fari til Brasilíu eður ei.

„Fjölskyldan er alltaf í fyrsta sæti hjá mér. Ég þarf að athuga hvort hún sé sátt áður en ég tek ákvörðun,“ sagði Day en hann er tveggja barna faðir.

McIlroy er ekki eini kylfingurinn sem fer ekki til Ríó því Vijay Singh og Marc Leishman ætla ekki að fara út af Zika-veirunni.

Svo hafa þeir Adam Scott og Louis Oosthuizen ekki áhuga á leikunum. Þeir hafa verið sakaðir um peningagræðgi enda engir peningar í boði fyrir árangur á þessu íþróttamóti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×