Erlent

Darren Wilson ekki ákærður

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Málið vakti upp mikla reiði vestanhafs
Málið vakti upp mikla reiði vestanhafs vísir/getty
Darren Wilson, lögreglumaðurinn sem skaut óvopnaðan ungling í Ferguson í Missouri til bana, mun ekki vera sóttur til saka vegna þessa.

Á vef The Guardian kemur fram að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að eftir sex mánaða rannsókn var ákveðið að ekki væri grundvöllur fyrir því að sækja Wilson til saka.

Ekki þóttu vera næg sönnunargögn til að skera úr um hvort Wilson hafi hleypt af skotvopni sínu í sjálfsvörn eða ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×