Innlent

Dagur lætur Júlíus Vífil heyra það vegna ummæla um Jón Gnarr

Birgir Olgeirsson skrifar
Niðurstaða verkefnis Jón Júlíusar er sú að Jón Gnarr hafi sannarlega verið borgarstjóri.
Niðurstaða verkefnis Jón Júlíusar er sú að Jón Gnarr hafi sannarlega verið borgarstjóri. Vísir/Ernir
„Þetta heitir að kunna ekki að skammast sín,“ skrifar Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, á Facebook um ummæli Júlíusar Vífils Ingvarssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem eru að finna í lokaverkefni Jóns Júlíusar Karlssonar til MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu.

Verkefnið snýr að borgarstjóratíð Jóns Gnarr þar sem hann þurfti margoft að sitja undir þeirri fullyrðingu að hann væri ekki borgarstjóri heldur væri borginni stýrt af embættismönnum og Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn, sem var jafnframt formaður borgarráðs í meirihlutasamstarfi Besta flokksins og Samfylkingarinnar.

Jón sannarlega borgarstjóri

Jón Júlíus segir að niðurstöður af viðtölum við fjóra einstaklinga, sem voru í lykilhlutverkum í stjórnsýslu Reykjavíkur í borgarstjóratíð Jóns Gnarr, benda til þess að Jón hafi sannarlega verið borgarstjóri. Benti til að mynda Regína Ásvaldsdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri borgarstjóra, á að veikleikar Jóns sem borgarstjóra hefðu fyrst og fremst legið í þekkingar- og reynsluleysi á stjórnsýslu Reykjavíkurborgar og umfangi embættisins. Til að brúa bilið leitaði Jón stíft í stjórnendur og embættismenn Reykjavíkurborgar eftir faglegri ráðgjöf og það beri vott um sterkan leiðtoga sem ber veikleika sína á torg og óskar eftir hjálp annarra til að geta sinnt starfi sínu betur.

Sjá einnig:Rekinn útaf hanakambi og hljóp grátandi heim

Júlíus Vífill er einn þeirra sem hefur haldið því fram að Dagur B. Eggertsson hafi stýrt borginni á bakvið tjöldin þó Jón Gnarr hafi borið titil borgarstjóra en Júlíus vill meina að það hafi reynst Jóni erfitt að setja sig inn í störf sem snerust ekki beint um hann heldur um hag annarra. 

„Reynst honum of flókið“

„Ég held að Jón hafi sinnt borgarstjórastarfinu eins og hann vildi. Jón Gnarr er auðvitað listamaður, mikilhæfur og greindur maður sem sér hlutina oft með skemmtilegum og áhugaverðum hætti. Þarna var hann kominn á stað sem að krafðist einbeitingar og setja sig inn í störf sem snérust ekki beint um hann sjálfan heldur um hag annarra. Ég held að það hafi reynst honum of flókið að gera það. Það voru vonbrigði að með því fyrsta sem gert er í upphafi þessa kjörtímabils var að breyta stjórnkerfi borgarinnar til þess að,“ segir Júlíus Vífiill í verkefninu og heldur áfram:

„Þess vegna var stjórnkerfinu breytt“

„Jón Gnarr þyrfti ekki að takast á við þau daglegu störf sem borgarstjóri hefur alltaf tekist á við. Honum óx þetta í augum og sá að hann var ekki að höndla starfið. Hann hafði aldrei staðið í stjórnunarstöðu og þetta kemur honum algjörlega í opna skjöldu þó hann hafi boðið sig fram í þetta. Hann hlýtur að hafa gert sér grein fyrir að hann gat ekki sinnt starfinu með sama hætti og aðrir höfðu gert fram til þessa. Þess vegna var stjórnkerfinu breytt. Þannig stendur það ennþá. Það kemur svolítið á óvart að Dagur skuli ekki hafa breytt því aftur.“



Einn magnaðasti maður sem Dagur hefur kynnst

Dagur B. Eggertsson segist ekki geta orða bundist vegna þessara ummæla Júlíus Vífils.

„Eftir kjörtímabil þar sem fyrri meirihluti þurfti að taka á honum stóra sínum við að reisa Orkuveitu Reykjavíkur og fjármál borgarinnar úr rústum, þá leyfir Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi Sjáfltæðisflokksins sér að velja þáverandi borgarstjóra, Jón Gnarr, þessa einkunn,“ skrifar Dagur og segir Júlíus Vífil ekki kunna að skammast sín.

„Jón Gnarr er einn magnaðist maður sem ég hef kynnst, með skarpara innsæi og meiri gáfur en fólk flest Hann er frábær manneska og var afburðagóður borgarstjóri.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×