Enski boltinn

Crouch jafnaði met Shearer

Anton Ingi Leifsson skrifar
Crouch fagnar marki sínu í dag.
Crouch fagnar marki sínu í dag. Vísir/Getty
Peter Crouch jafnaði í gær Alan Shearer yfir þá leikmenn sem hafa skorað flest mörk með skalla, eða 46 talsins. Crouch mun þó líklega taka fram úr Shearer áður en langt um líður.

Crouch skoraði sigurmarkið gegn Hull í gær eftir að hafa komið inná sem varamaður. Hann skoraði sigurmarkið nítján mínútum fyrir leikslok eftir sendingu frá Charlie Adam. Markið var hans 46. í röðinni með skalla.

Shearer og Crouch eru jafnir efst með 46 og Dion Dublin kemur næstur með 45 mörk. Les Ferdinand er svo með 40 mörk og Dwight Yorke með 38. Crouch mun að öllum líkindum síga fram úr þessum mönnum, líklega á þessu tímabili.

Crouch, sem er 34 ára gamall, hefur spilað með liðum á borð við Tottenham, Liverpool og Stoke á sínum ferli og raðað inn með hausnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×