Erlent

Corbyn leiðir í könnunum

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Margir óttast einangrun flokksins.
Margir óttast einangrun flokksins. Fréttablaðið/AFP
Jeremy Corbyn er í forystu í skoðanakönnunum fyrir formannskjör Verkamannaflokksins í Bretlandi.

Corbyn, sem áður þótti ólíklegur til sigurs, tók óvænt forskotið í mánuðinum með um 40 til 50 prósenta fylgi.

Hann þykir vera á vinstrivæng Verkamannaflokksins og hefur Tony Blair meðal annars varað við afleiðingum þess að Corbyn nái kjöri en margir framámenn í flokknum óttast að Verkamannaflokkurinn muni einangrast undir forystu Corbyns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×