Erlent

Clinton og Trump skjóta föstum skotum

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og Hillary Clinton.
Donald Trump og Hillary Clinton. Vísir/AFP
Einungis nokkrir dagar eru í forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og keppast þau Donald Trump og Hillary Clinton nú við að ná til eins margra kjósenda og mögulegt er. Bæði hafa þau skotið föstum skotum á síðustu dögum. Trump hefur vaxið ásmegin eftir að yfirmaður Alríkislögreglunnar tilkynnti að rannsókn á tölvupóstum Clinton væri komin aftur af stað.

Trump hélt ræðu í Flórída í dag þar sem hann sagðist sannfærður um að hann myndi verða kosinn í Hvíta húsið í kosningunum í næstu viku. Hann gaf í skyn að það eina sem hann þyrfti að gera væri að halda einbeittningunni og halda sig við málefnin.

Því næst sagði hann að Clinton komin í geðfarslegt ójafnvægi. Hann sagði einnig að ef Clinton myndi vinna myndu áralangar rannsóknir og kærur myndu þvælast fyrir henni.

„Það er ekki það sem Bandaríkin þurfa á að halda. Við þurfum einhvern sem er tilbúinn að ganga beint til starfa,“ sagði Trump.

Ráði ekki við starfið

Clinton og bandamenn hennar hafa hins vegar einbeitt sér að ummælum Trump og hæfi hans til embættis forseta. Clinton sagði hann hafa daðrað við rasista og þjóðernissinna nánast alla kosningabaráttuna. Hann hefði jafnvel endurtíst skilaboðum frá meðlimum Ku Klux Klan.

„Ef Trump yrði forseti, myndum við sitja uppi með forseta sem væri ekki starfi sínu vaxinn og hefði ótrúlega hættulegar hugmyndir,“ sagði Clinton.

Kosningarnar eru þegar hafnar víða og samkvæmt upplýsingum AP fréttaveitunnar hefur ungt fólk og þeldökkt fólk ekki kosið í jafn miklu mæli og áður og gæti það skapað vandræði fyrir Clinton.

Barack Obama virðist hafa fengið það verkefni að kveikja í áhuga ungs fólks, en hann hélt ræðu fyrir háskólanemendur í Flórída í dag. Hann sagði áhorfendum sínum að nú væri tími til kominn að taka kosningunum alvarlega. Hann sagði að öll sú vinna sem hefði verið unnin á undanförnum átta árum myndi gufa upp ef Clinton myndi ekki vinna kosningarnar.

„Þetta er ekkert grín. Þetta er ekki Survivor. Þetta er ekki Bachelorette. Þetta skiptir máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×