Viðskipti erlent

CES 2017: Vilja gerbreyta og drónavæða fiskveiðar

Samúel Karl Ólason skrifar
Auk þess að finna fiskana og mynda þá geta veiðimenn notað PowerRay til þess að laða fiska að með sérstökum þar til gerðum ljósum, eða einfaldlega fest veiðarfærin við drónann og látið hann flytja þau á réttan stað.
Auk þess að finna fiskana og mynda þá geta veiðimenn notað PowerRay til þess að laða fiska að með sérstökum þar til gerðum ljósum, eða einfaldlega fest veiðarfærin við drónann og látið hann flytja þau á réttan stað. PowerVision
Fyrirtækið PowerVision stefnir að því að gerbreyta tómstundaveiði. Það vill fyrirtækið gera með því að gera veiðimönnum kleift að notast við neðansjávardróna við veiðarnar. Dróninn PowerRay var kynntur á CES tækniráðstefnunni í Las Vegas sem stendur nú yfir og er útbúinn myndavélum, sónar og öðrum skynjurum og tækjum sem gera honum kleift að finna fiska á allt að 30 metra dýpi.

Hægt er að stýra PowerRay með fjarstýringu, snjalltækjum, eða jafnvel sýndarveruleikagleraugum.

Auk þess að finna fiskana og mynda þá geta veiðimenn notað PowerRay til þess að laða fiska að með sérstökum þar til gerðum ljósum, eða einfaldlega fest veiðarfærin við drónann og látið hann flytja þau á réttan stað.

Samkvæmt PowerVision fer PowerRay dróninn í sölu í næsta mánuði. Verð liggur ekki fyrir en erlendir miðlar gera ráð fyrir því að það verði mjög hátt.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×