Andy Carroll vill ekki fara til West Ham Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. júlí 2012 14:13 Nordicphotos/Getty
Þótt Liverpool og West Ham hafi komist að samkomulagi um leigusamning Carroll til Lundúnarfélagsins er málið langt í frá í höfn. Framherjinn virðist ekki vilja fara til West Ham. BBC greindi frá því í gær að félögin hefðu komist að samkomulagi um tveggja milljóna punda leigufé á Carroll út næstu leiktíð. Að henni lokinni hefði West Ham möguleika á að kaupa Carroll á sautján milljónir punda. Guardian greinir frá því í dag að Carroll hafi lítinn áhuga á að ganga til liðs við nýliða West Ham. Hann vilji fyrst og fremst berjast fyrir sæti sínu í liði Liverpool en annars lítist honum best á að ganga til liðs við fyrrum félaga sína hjá Newcastle. Guardian hefur reyndar heimildir fyrir því að samkomulag West Ham og Liverpool sé þess efnis að Lundúnarfélagið þyrfti að kaupa Carroll héldi það sæti sínu í úrvalsdeildinni. Ekki væri um kauprétt eða möguleika að ræða líkt og haldið hefur verið fram í öðrum miðlum. Alan Pardew, knattspyrnustjóri Newcastle, hefur fylgst vel með Carroll og farið fögrum orðum um hann. Sú staðreynd að Newcastle spilar í Evrópudeildinni í vetur er talin gera félagið að vænlegri kosti fyrir Carroll. Laun Carroll gætu þó staðið í vegi fyrir endurkomu hans til Newcastle. Framherjinn stæðilegi fór úr 20 þúsund pundum á viku í 80 þúsund pund á viku hjá Liverpool. Þau laun eru umtalsvert hærri en gengur og gerist á launaskrá Newcastle.
Enski boltinn Tengdar fréttir West Ham og Liverpool komast að samkomulagi um Andy Carroll West Ham hefur komist að samkomulagi við Liverpool um að fá framherjann Andy Carroll lánaðan til félagsins. 30. júlí 2012 18:57 Mest lesið Fimm ástæður þess að Ísland vinni EM Fótbolti „Auðvitað á þetta að vera svona hjá KSÍ líka“ Fótbolti Biðla til FIFA um að hætta við miðdagsleiki af ótta við hita Fótbolti City úr leik eftir sjö marka spennutrylli gegn Al-Hilal Fótbolti Efaðist en lagði allt í sölurnar fyrir EM: „Mörg gleðitár“ Fótbolti „Ef þú vilt ekki vera hérna, farðu bara“ Fótbolti Gáttaðir á ótrúlegu skoti: „Yrði dæmt á þetta í blakinu“ Fótbolti Bonmatí komin til móts við spænska landsliðið Fótbolti Fimm ástæður þess að Ísland falli strax út á EM Fótbolti Dagskráin í dag: Hafnaboltinn á sviðið Sport Fleiri fréttir Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Sjá meira
West Ham og Liverpool komast að samkomulagi um Andy Carroll West Ham hefur komist að samkomulagi við Liverpool um að fá framherjann Andy Carroll lánaðan til félagsins. 30. júlí 2012 18:57