Enski boltinn

Cantona sendir Manchester kveðju: „Hjarta mitt er með ykkur“ | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eric Cantona er goðsögn hjá Manchester United.
Eric Cantona er goðsögn hjá Manchester United. vísir/getty
Manchester er í sárum eftir hryllilegt voðaverk sem átti sér stað á mánudagskvöldið þegar sprengjuárás á tónleikum Ariönu Grande tók líf 22 einstaklinga og særði 59 fyrir utan MEN Arena-höllina.

Á sama tíma borgarbúar syrgja og reyna að komast yfir þennan hryllilega atburð undirbýr Manchester United sig fyrir stærsta leik tímabilsins hjá sér en það mætir Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í kvöld.

Einnar mínútu þögn verður fyrir leikinn til að minnast þeirra sem að létust en ákveðið var að leikurinn færi fram þrátt fyrir atburðinn á mánudagskvöldið.

Eric Cantona, fyrrverandi leikmaður Manchester United sem er goðsögn í lifanda lífi hjá stuðningsmönnum liðsins, sendi öllum íbúum borgarinnar kveðju á Twitter-síðu Eurosport en Frakkinn elskar Manchester og ensku þjóðina.

„Ég finn mikið til með fórnarlömbunum, og þeim sem særðir eru; börnunum, unglingunum, fullorðna fólkinu, vinum þeirra og fjölskyldum,“ segir Cantona.

„Ég finn til með Manchester og stuðningsmönnum Manchester United sem ég elska svo mikið. Ég finn til með Englandi og Englendingum sem ég elska svo heitt. Ég syrgi með ykkur. Hjarta mitt er með ykkur. Ég er alltaf með ykkur,“ segir Eric Cantona.

Kveðjuna má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Veljum ást

Það er ekkert sem getur fengið mann til þess að skilja alla þá mannvonsku og brjálsemi sem liggur að baki voðaverkinu í Manchester á mánudagskvöldið.

Stór hluti látinna og særðra á barnsaldri

Heimatilbúin naglasprengja var notuð við ódæðisverkið í tónleikahöllinni Manchester Arena í fyrrakvöld. Eitt fórnarlamba árásarinnar var átta ára gamalt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×