Lífið

Caitlyn Jenner í tilfinningaþrungnu viðtali: „Þetta var algjört helvíti“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Caitlyn Jenner
Caitlyn Jenner vísir
Caitlyn Jenner sat föst inn á heimili sínu í þrjá mánuði til að halda forsíðutökunni í Vanity Fair leyndri.

„Ég hef í raun verið föst hér í þrjá mánuði og þetta hefur tekið gríðarlega á mig,“ sagði Jenner í viðtali um það leyti sem forsíðumyndin var tekin.

Jenner var á forsíðu júlí blaðs Vanity Fair og er sú forsíðu nú orðin heimsfræg. Caitlyn, sem áður hét Bruce Jenner, sat fyrir hjá ljósmyndaranum Annie Leibovitz en heimurinn sá fyrst Caitlyn Jenner á forsíðu tímaritsins. Myndirnar voru teknar á heimili hennar í Malibu í Kaliforníu.

Jenner varð að klæðast víðum fötum og helst í hettupeysu. Ljósmyndarar vöktuðu heimilið hennar allan sólahringinn og varð hún að fara sérstaklega varlega.

„Þetta var algjört helvíti,“ segir hún en sjá má hana í tilfinningaþrungnu viðtali hér að neðan.


Tengdar fréttir

Caitlyn Jenner sló heimsmet í gær

Caitlyn Jenner sló í gær heimsmet en enginn manneskja hefur náð að sanka að sér eins mörgum fylgjendur á Twitter á eins stuttum tíma.

Ævintýri að vera mynduð af Leibovitz

Eva Katrín Baldursdóttir var mynduð af ljósmyndaranum Annie Leibovitz í apríl síðastliðnum en hún er einn þekktasti ljósmyndari heims.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×