Viðskipti innlent

Býst við að fargjöld til Bandaríkjanna lækki með tilkomu WOW

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Áfangastaðir WOW air í Bandaríkjunum á næsta ári verða Boston og Washington D.C.
Áfangastaðir WOW air í Bandaríkjunum á næsta ári verða Boston og Washington D.C.
Talsmaður Norwegian, norsks flugfélags sem flýgur til Bandaríkjanna frá Skandinavíu og London, fagnar því að WOW air muni einnig fljúga vestur um haf á næsta ári.

Hann segir í samtali við vefsíðuna turisti.is að aukin samkeppni muni koma farþegum til góða. Valmöguleikar viðskiptavina aukist og mjög líklegt sé að verð lækki.

WOW air mun fljúga til Boston og Washington D.C. á næsta ári. Fyrsta flugið til Boston verður 27. mars og fyrsta ferðin til Washington 4. júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×