Lífið

Buzzfeed byrjað að telja niður í forsetakosningarnar 2020

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bara minna en fjögur ár í næstu kosningarnar í Bandaríkjunum.
Bara minna en fjögur ár í næstu kosningarnar í Bandaríkjunum.
Fréttavefurinn Buzzfeed er byrjaður að telja niður í forsetakosningarnar árið 2020 í beinni útsendingu á Facebook-síðu sinni en útsendingin hófst fyrir um klukkutíma með skilaboðunum „We‘re less than 4 years away!!“ sem gæti útlagst á íslensku sem „Það eru minna en fjögur ár í þetta!!“ Kosningarnar verða þann 9. nóvember 2020.

Ef marka má hversu margir eru að horfa á útsendinguna þegar þetta er ritað þá er ljóst að margir bíða í ofvæni eftir því að kjörtímabili Donald Trump ljúki en alls eru yfir 100 þúsund manns að fylgjast með útsendingunni, sem sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×