Golf

Bubba Watson í gervi rappandi jólasveins - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bubbaclaus.
Bubbaclaus. Mynd/Youtube-myndband
Atvinnukylfingurinn Bubba Watson, eða Bubbaclaus eins og hann kallar sig nú í jólamánuðinum, ákvað að gleðja aðdáendur sína um þessi jól með því að gefa út smáskífu.

Bubbaclaus skellir sér í hlutverk rappandi jólasveins í myndbandinu en Bubba Watson kann greinilega vel við sig með hljóðnemann fyrir framan sig.

Það má aftur á móti kannski gagnrýna kappann fyrir danstaktana en allt var þetta nú gert til að hafa gaman af.

Bubba Watson átti fínt ár og komst hæst í þriðja sætið á heimslistanum sem hans hæsta staða á ferlinum. Watson er núna fjórði besti kylfingur heims á eftir þeim Rory McIlroy, Henrik Stenson og Adam Scott.

Stærsta afrek Bubba Watson á árinu 2014 var án vafa þegar hann vann Mastersmótið í annað skiptið á þremur árum en það eru einu risamótin sem hann hefur unnið á ferlinum.

Myndbandið með jólalagi Bubbaclaus má sjá hérna fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×