Viðskipti innlent

Brynjólfur Bjarnason í stjórn Arion banka

Bjarki Ármannsson skrifar
Brynjólfur Bjarnason.
Brynjólfur Bjarnason. Vísir/Vilhelm
Brynjólfur Bjarnason, fyrrverandi forstjóri Símans, var kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi bankans í gær. Hann kemur inn í stjórn í stað Björgvins Skúla Sigurðarsonar.

Þetta kemur fram í frétt á vef bankans. Brynjólfur var forstjóri Símans frá 2002 til 2007. Einnig hefur hann starfað sem forstjóri Skipta, forstjóri Granda hf., framkvæmdastjóri AB bókaútgáfu og framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×