Brúnkaka

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
250 g Smjör
2 egg
375 g púðursykur
1 tsk kanell
1 tsk negull
1 tsk natron
Rifið hýði af einni sítrónu
200 g kúrennur og súkkat
1/4 l mjólk
500 g hveiti

Smjörið er hrært með sykrinum.
Eggin hrærð þar út í.
Hrærist um stund.
Þá er hinu rifna sítrónuhýði, kúrenum og súkkati blandað saman við og hveitinu, natróninu og öllu kryddinu.
Mjólkinni hrært þar út í.
Látið í smurt mót og bakað við frekar lítinn hita, þar til kakan er vel gegnumbökuð.

Fleiri fréttir - Jólavefur

Þú ert hér: Forsíða / Jólavefur / Brúnkaka