Viðskipti innlent

Breytt kortatímabil hjá Valitor

Nýja fyrirkomulagið tekur gildi 18. febrúar 2011 og stendur það tímabil því fram til 21. mars.
Nýja fyrirkomulagið tekur gildi 18. febrúar 2011 og stendur það tímabil því fram til 21. mars.
Með hliðsjón af breyttum aðstæðum í kortaviðskiptum hefur Valitor ákveðið að færa almennt úttektartímabil Visa kreditkorta þannig að það standi frá 22. degi hvers mánaðar til 21. dags næsta mánaðar. Nýja fyrirkomulagið tekur gildi 18. febrúar 2011 og stendur það tímabil því fram til 21. mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor.

„Febrúar hentar vel fyrir þessa hliðrun á dagsetningum þar sem hann er styttri en aðrir mánuðir. Þar af leiðandi verður úttektartímabilið ekki óeðlilega langt og ætti því ekki að valda korthöfum óþægindum," segir í tilkynningunni.

Óbreyttur gjalddagi

Gjalddagi kortanna verður óbreyttur: 2. dag næsta mánaðar eftir að úttektartímabili lýkur. Engin breyting verður heldur á boðgreiðslum né öðrum föstum greiðslum korthafa.

Um 30% af kortaviðskiptum innlendra söluaðila, sem eru í viðskiptum við Valitor, fara fram á almennum tímabilum en um 70% á svokölluðum breytilegum tímabilum sem verða með samskonar sniði og áður. Með breytilegum tímabilum er átt við þær dagsetningar sem verslanir auglýsa sem ný kortatímabil en langflestar verslanir sem selja almennar neysluvörur nýta sér breytilegu tímabilin.

Í tilkynningunni segir að nýja fyrirkomulagið breyti litlu fyrir korthafa.

.

Áður þurfti að handskrá sölunótur

Allt frá árinu 1983 hefur almennt úttektartímabil VISA korthafa staðið frá 18. degi hvers mánaðar til 17. dags næsta mánaðar. Aðalástæða þess að kortatímabilinu lauk þann 17. var sú að handskrá þurfti allar sölunótur. Sú vinna var tímafrek og því nauðsynlegt að hafa nokkra daga til að koma allri skráningu í gegn áður en reikningar voru gefnir út. Tækninni hefur fleygt fram og nú tekur vinnslan mun skemmri tíma en í árdaga kortaviðskipta á Íslandi, auk þess sem miklar breytingar hafa orðið á umhverfi greiðslumiðlunar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×