Innlent

Breytingarnar eiga að gæta jafnræðis

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Elín Sigurðardóttir, varaformaður velferðarráðs, segir að öryrkjar sem nýti allt að eitthundrað ferðir á mánuði með ferðaþjónustu fatlaðra séu flestir í vinnu og hafi úr meiru að spila en örorkubótum. Hún segir að talsmenn fatlaða hafi misskilið breytingarnar og ekki standi til að vísa þeim á leigubíla geti þeir rökstutt þörf sína fyrir ferðir umfram lögboðið hámark.

Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær að fatlaðir sem fara áttatíu til hundrað ferðir með ferðaþjónustu fatlaðra horfi fram á að aksturkostnaður þeirra hækki um tugi þúsunda mánaðarlega vegna gjaldskrárhækkana hjá borginni. Frá velferðarsviði koma þær skýringar að breytingarnar séu til að gæta jafnræðis.

Elín segir að þegar séu sextíu ferðir í boði en fólk geti farið fleiri ferðir ef það fái sérstaka undanþágu. Það sé fyrst og fremst verið að skýra þessar reglur.

Geta fengið sama fjölda ferða og áður

Talsmenn öryrkja segja að það hindri ferðafrelsi þeirra að takmarka ferðirnar við sextíu á mánuði. Til að fara fleiri ferðir þarf að sækja um sérstaka undanþágu og greiða margfalt hærra gjald. Talsmenn fatlaðra sögðu í gær að taka sérútbúna þyrfti leigubíla ef ferðir yrðu fleiri en áttatíu. Elín segir það hinsvegar vera misskilning þeirra að taka þurfi sérútbúna leigubíla í einhverjum tilfellum. Öryrkjar geti áfrýjað til sérstakrar áfrýjunarnefndar og fengið sama fjölda og áður ef þeir rökstyðji að þeir þurfi á því að halda.

Hún segir að kostnaður við eitthundrað ferðir á mánuði verði því aldrei meiri en 55.000 en það er hækkun uppá ríflega 20.000.

„Ég veit að þetta er íþyngjandi,“ segir Elín. „En það eru örfáir einstaklingar sem nota fleiri en áttatíu ferðir. Þeir eru frekar á vinnumarkaði og hafa því úr meiru að spila en örorkubótum. Það hafa komið athugasemdir fram um að við ættum frekar að hækka gjaldskrá fyrir þjónustuna flatt á allan hópinn. Þarna eru uppi mismunandi sjónarmið, eiga allir að greiða eða þeir sem nota þjónustuna mest og eru þá kannski í öðrum aðstæðum en fjöldinn.“

Hún segist telja að ekki sé verið að skerða ferðafrelsi líkt og talsmenn fatlaðra haldi fram. Það sé markmiðið að fatlað fólk komist allra sinna ferða hindrunarlaust en stundum þurfi að taka erfiðar ákvarðanir eins og í þessu tilfelli. Þarna sé líka verið að auka þjónustu þannig að fólk geti pantað sér ferðir samdægurs og það megi segja að það auki ferðafrelsi.

Tengdar fréttir

Fatlaðir látnir rúnta um bæinn í hagræðingarskyni

Ferðaþjónusta fyrir fatlaða í borginni er í ólestri eftir að strætó tók við rekstrinum og breytti fyrirkomulaginu. Ferð sem á að taka tíu mínútur hvora leið getur tekið marga klukkutíma.

Nýjar reglur ferðaþjónustu fatlaðra skerða ferðafrelsið

Fatlaðir einstaklingar gagnrýna nýjar verklagsreglur við ferðaþjónustu fatlaðra. Ákvæði um hámarksferðir í mánuði mismuna fötluðum að þeirra mati. Eftir áttatíu ferðir í mánuði þarf fatlaður að bíða til mánaðamóta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×