Innlent

Breytingar á stjórnarskránni lagðar fram

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Forsætisráðherra hefur lagt fram á Alþingi rumvarp til laga um breytingar á stjórnarskránni.
Forsætisráðherra hefur lagt fram á Alþingi rumvarp til laga um breytingar á stjórnarskránni. Vísir/Stefán
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga um breytingu á stjórnarskránni. Um er að ræða tillögu að breytingu sem Stjórnarskrárnefnd lagði til fyrr á árinu. Leggur forsætisráðherra fram breytingarnar í eigin nafni.

Frumvörpin sem stjórnarskrárnefnd lagði fram eru þrjú. Þau fjalla um þjóðareign á náttúruauðlindum, umhverfis- og náttúruvernd og þjóðaratkvæðagreiðslur að kröfu kjósenda og liggja þessar tillögur nú fyrir Alþingi í formi frumvarps til laga um breytingu á stjórnarskránni.

Sjá einnig: Leggja til að 15 prósent geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu

Lagt er meðal annars til að fimmtán prósent kosningarbærra manna geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um lög frá Alþingi en undanskilin ákvæðinu eru fjárlög, fjáraukalög, lög um skattamálefni og lög sem sett eru til að framfylgja þjóðréttarskuldbindingum.

Sigurður Ingi Jóhannesson forsætisráðherra.Vísir/Stefán
Þá er einnig sett fram almennt ákvæði um að auðlindir náttúru Íslands tilheyri íslensku þjóðinni og sett skilyrði fyrir veitingu heimilda til nýtingar auðlinda í eigu ríkisins og í þjóðareign og kveðið á um skyldu ríkisins til þess að taka að jafnaði eðlilegt gjald fyrir og gæta jafnræðis og gagnsæis.

Samkvæmt frumvarpinu mun ábyrgð á vernd náttúru og umhverfis hvíli sameiginlega á öllum og að verndin skuli grundvallast á varúðar- og langtímasjónarmiðum með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.

Sjá einnig: Kemur ekki til greina að afgreiða frumvörp um stjórnarskrá

Nefndarmenn í stjórnarskrárnefnd voru ekki á einu máli um það að hve miklu leyti athugasemdir sem fram komu við samráð kölluðu á breytingar á frumvarpsdrögunum og einungis voru gerðar þær breytingar sem allir nefndarmenn gátu fallist á. Hefur forsætisráðherra nú lagt fram þessar tillögur á þingi en fyrr í sumar sagði hann slíkt stæði til.

Þegar tillögurnar voru lagðar fram voru nefndarmenn stjórnarskrárnefndar í vafa um hvort frumvörp nefndarinnar sem afhent voru kæmu nokkurn tíma til umræðu á Alþingi. Þá sagði Birgitta Jónsdóttir Pírati að ekki kæmi til greina að afgreiða þessar breytingar fyrir kosningar sem haldnar verða í haust.


Tengdar fréttir

Forsætisráðherra vill frumvörp um stjórnarskrá á sumarþing

Forsætisráðherra hyggst leggja fram frumvörp að breytingum á stjórnskipunarlögum á sumarþingi. Stjórnarskrárnefnd hefur nú skilað af sér þremur lagafrumvörpum sem formaður nefndarinnar segir endurspegla það sem næst komist málamiðlun milli flokkanna um umdeild atriði.

Breytingafrumvörp gætu dagað uppi

Engin samstaða náðist um framsal valdheimilda í þágu alþjóðasamvinnu í vinnu stjórnarskrárnefndar. Framsal valdheimilda er álitið nauðsynlegt til að Ísland geti orðið aðili að Evrópusambandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×