Erlent

Bretar óttast ebólufaraldur

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Philip Hammond.
Philip Hammond. vísir/getty
Ebólaveira er alvarleg ógn við Bretland að sögn Philip Hammond, utanríkisráðherra landsins. Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi sendu út viðvaranir eftir að breskur karlmaður veiktist alvarlega á leið frá Vestur-Afríku til Bretlands. Mikil skelfing greip um sig á meðal Breta, en ebóla veiran er sú mannskæðasta í sögunni og níutíu prósent þeirra sem með hana greinast deyja.

Maðurinn var sendur í sóttkví en í ljós kom að maðurinn var ekki sýktur af veirunni. Utanríkisráðherra Bretlands segir þó að grípa þurfi til ráðstafanna, svo veiran dreifi sér ekki þar í landi. 

Ebólunnar var fyrst vart í Gíneu í ársbyrjun og hefur hún síðan þá náð að breiðast út til nærliggjandi landa, Líberíu og Sierra Leone og óttast er að hann hafi nú borist til Nígeríu, fjölmennasta ríkis Afríku. 

Faraldurinn hefur dregið 670 manns til dauða og er sagður sá allra versti og skæðasti í sögunni. Allra leiða er því leitað til að hefta útbreiðslu hans. Bann hefur því verið lagt við hvers kyns opinberum samkomum í Vestur-Afríku til að sporna við smithættu, skólum hefur verið lokað og öðrum almenningsstöðum. 

Ebóla-vírusinn smitast milli manna meðal annars í jarðarförum þeirra sem hafa látist af hans völdum. Engin lækning er til við vírusnum sem  veldur innvortis blæðingum og líffærabilun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×