Erlent

Breskir ferðamenn myrtir í Taílandi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
David Miller, 24 ára og Hanna Witheridge, 23 ára, frá Norfolk
David Miller, 24 ára og Hanna Witheridge, 23 ára, frá Norfolk
Lík tveggja breskra ferðamanna fundust á strönd á Koh Tao eyjunni í Taílandi í gær. David Miller, 24 ára og Hanna Witheridge, 23 ára, frá Norfolk, fundust látin skammt frá gististað þeirra á eyjunni. Töluverðir áverkar voru á líkunum og bæði voru þau án klæða. Þá fannst blóðug arfaskafa skammt frá líkunum í gær, sem talin er hafa verið notuð við verknaðinn. Lík þeirra verða flutt til  Bangkok í dag þar sem þau verða krufin.

Taílenska lögreglan leitar nú logandi ljósi að vitnum og vísbendingum sem gæti leitt hið sanna í ljós en tveir menn frá Búrma voru í dag yfirheyrðir af lögreglu. Að sögn starfsmanns á svæðinu er þetta í fyrsta sinn sem svo skelfilegur atburður á sér stað á þessum slóðum, en eyjan er afar vinsæll ferðamannastaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×