Bíó og sjónvarp

Börn fá frítt á klámmynd

Charlotte Gainsbourg leikur kynlífsfíkilinn Joe.
Charlotte Gainsbourg leikur kynlífsfíkilinn Joe. Vísir/Skjáskot
Börn í New York-borg geta nú séð hina umdeildu kvikmynd Nymphomaniac í leikstjórn Lars von Trier, þegar sýningar hefjast vestan hafs, nú á föstudaginn.

Sunshine Cinema, kvikmyndahús á Manhattan, býður börnum frítt í bíó í fylgd með fullorðnum sem hluti af tilboði sem þeir bjóða upp á á miðvikudögum.

Entertainment Weekly hringdu í kynningarstjóra kvikmyndahússins sem staðfesti að tilboðið myndi standa óbreytt.

„Tilboðið sem við bjóðum upp á á miðvikudögum hefur gefið góða raun. Að bjóða foreldrum og forráðamönnum ungra barna upp á sýningar snemma dags, og börnin fá að koma með, án þess að borga þurfi fyrir það sérstaklega. Okkar stefna er að bjóða viðskiptavinum okkar upp á að sjá allar nýjar kvikmyndir sem við tökum til sýninga sama um hvað myndin fjallar eða hvort hún er bönnuð ákveðnum aldurshópum.“

Myndin hefur vakið athygli fyrir svo grófar kynlíssenur að tölvutækni er notuð til að klippa höfuð aðalleikaranna við klámmyndaleikara, sem sjá um grófustu atriðin í myndinni. 

Í myndinni leikur Charlotte Gainsbourg kynlífsfíkilinn Joe, sem segir erótíska sögu sína frá fæðingu til fimmtugs. 

Nymphomaniac er síðasta myndin í þunglyndisþríleik leikstjórans Lars von Trier, en fyrri myndirnar eru hin umdeilda Antichrist og hin átakanlega Melancholia.


Nymphomaniac Official Trailer from Zentropa on Vimeo.


Tengdar fréttir

Óklippt útgáfa sýnd í Berlín

Óklippt útgáfa af kvikmyndinni Nymphomaniac Volume I verður heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín.

Íslenskir gagnrýnendur fá fullnægingu

Íslenskir kvikmyndagagnrýnendur sýna það og sanna að þeir eru aldeilis engar teprur, eins og nýstárlegt uppátæki er til vitnis um.

Shia LaBeouf sendi typpamyndir

"Það fyrsta sem framleiðendur myndarinnar fóru fram á voru myndir af typpinu á mér,“ segir LaBeouf.

„Von Trier er hættulegur“

Nymphomaniac: Part 1, nýjasta kvikmynd Lars von Trier, verður frumsýnd hér á landi á föstudag.

Fimm tíma klám á Cannes

Lars Von Trier mun mæta til leiks á kvikmyndahátíðina næsta vor með frumsýningu á nýjustu mynd sinni, Nymphomaniac. Myndin hefur vakið athygli fyrir grófar kynlíssenur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×