Enski boltinn

Bojan þarf að fara í aðgerð

Bojan fagnar marki sínu í gær. Hans síðasta á þessum vetri.
Bojan fagnar marki sínu í gær. Hans síðasta á þessum vetri. vísir/getty
Stoke varð fyrir gríðarlega áfalli í dag þegar ljóst varð að Spánverjinn Bojan Krkic spilar ekki meira í vetur.

Hann meiddist illa á hné í leiknum gegn Rochdale í bikarnum í gær. Leik sem hann skoraði í.

Bojan þarf að fara í aðgerð vegna meiðslanna og spilar þar af leiðandi ekki aftur fyrr en á næstu leiktíð.

Þetta er mikill skellur fyrir Stoke enda hefur Bojan spilað frábærlega fyrir liðið í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×