Innlent

Boðin sjálfboðavinna við fataflokkun

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Systurnar dvöldu í þessu húsi í Vík í Mýrdal.
Systurnar dvöldu í þessu húsi í Vík í Mýrdal. vísir/Þórhildur
Systrum frá Srí Lanka sem eru þolendur mansals í Vík í Mýrdal var boðið sjálfboðastarf við fataflokkun af ríkinu. „Þær höfðu bara engan áhuga á slíku. Þær vildu bara vinna og fá greitt fyrir sína vinnu og fá sómasamlega framfærslu á meðan ég var að berjast fyrir atvinnuleyfi handa þeim,“ segir Kristrún Elsa Harðardóttir, lögmaður hjá Landi lögmönnum og réttargæslumaður systranna.

Viðbragðsteymi vegna mansals hélt utan um meðferð systranna og ráðgjafi á vegum þess bauð þeim iðjuna til þess að þær hefðu eitthvað að fást við á meðan þær dvöldu í athvarfinu.

Kristrún Elsa Harðardóttir lögmaður hjá Land lögmönnum og réttargæslumaður systranna frá Sri Lanka segist ekki hafa orðið vör við það að viðbragðsteymi hafi boðið lausnir og úrræði.
Systurnar fóru úr landi aðfaranótt fimmtudags vegna þess að þær fengu ekki að vinna eftir að þær voru komnar í skjól ríkisins. Þá dvöldu þær aðeins í fáeina daga í Kvennaathvarfinu vegna úrræðaleysis. 

Fjárhagsaðstoð ríkisins dugði þeim ekki. Þær fengu 761 krónu á dag í aðstoð. „Eins og ég hef áður sagt þá líta þolendur mansals oft ekki á sig sem þolendur og telja sig ekki þurfa neina aðstoð. Það á að sjálfsögðu að fá sálfræðing til þess að ræða við þær strax og meta þeirra ástand og þörf á viðeigandi heilbrigðis- og sálfræðiaðstoð. Ekki bara segja við þær að hitt og þetta sé í boði,“ segir Kristrún og segir þörf á því að endurskoða úrræðin. „Það þarf að vera einhver einn sem sér algerlega um að halda utan um þær og þarfir þeirra og þjónustu á þessum mikilvæga tíma þegar verið er að reyna að ná þeim út úr þeim aðstæðum sem þær voru í. Það á bara að vera eitthvert fastmótað ferli, úrræði sem fara af stað og athvarf sem tekur við þar sem sérfræðingur í velferð mansalsfórnarlamba stendur vaktina og er þeim innan handar allan sólarhringinn,“ segir hún.


Tengdar fréttir

Líklega komnar aftur í hendur glæpamanna

Systurnar sem sættu meintu mansali báðu sjálfar um flutning úr landi. Þær fengu 761 krónu á dag frá ríkinu. Auk systranna eru fjórir aðrir með stöðu brotaþola í málinu. Réttargæslumaður þeirra segir þær ekki hafa farið aftur til

Úr athvarfi aftur í Vík

Systurnar sem eru farnar af landi brott og eru með stöðu þolenda mansals í Vík í Mýrdal gistu aðeins fáeina daga í Kvennaathvarfinu. Þær fóru aftur til Víkur í Mýrdal um nokkurra daga skeið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×