Viðskipti innlent

Bluebird Cargo ræður nýjan flugrekstrarstjóra

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Tómas Dagur hefur starfað hjá Icelandair síðan 1984.
Tómas Dagur hefur starfað hjá Icelandair síðan 1984. Mynd/aðsend
Tómas Dagur Helgason hefur verið ráðinn sem flugrekstrarstjóri (e. Director Flight Operations) hjá Bláfugli ehf.  T

Tómas hefur starfað hjá Icelandair síðan 1984 bæði sem flugmaður og flugstjóri og hefur flogið samtals um 12500 flugstundir á ýmsum flugvélategundum.

Tómas hefur einnig gegnt stöðu þjálfunarflugstjóra,  komið að ýmsum flugöryggismálum og ritstýrt gerð handbóka er tengjast þjálfun og öðrum þáttum flugrekstrar.

Tómas mun hefja störf 1. ágúst.  Hann mun heyra beint undir forstjóra Bláfugls og tekur sæti í framkvæmdastjórn félagsins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×