Innlent

Blá lömb spígspora um Steingrímsfjörð

Bláa fjölskyldan á Bassastöðum Tvílembd ær vildi ekki annað lambið sitt þannig að bóndinn gerði henni ómögulegt að þekkja þau í sundur svo nú fá bæði lömbin að njóta móðurlegrar umhyggju ærinnar. Eins er ástatt um aðra tvílembda kind á Bassastöðum.Fréttablaðið/Garðar
Bláa fjölskyldan á Bassastöðum Tvílembd ær vildi ekki annað lambið sitt þannig að bóndinn gerði henni ómögulegt að þekkja þau í sundur svo nú fá bæði lömbin að njóta móðurlegrar umhyggju ærinnar. Eins er ástatt um aðra tvílembda kind á Bassastöðum.Fréttablaðið/Garðar
„Gamlir og þrjóskir bændur eru búnir að finna upp alls konar brellur," segir Guðbrandur Sverrisson, bóndi á Bassastöðum í Steingrímsfirði, sem heilsprautaði í vor fjögur nýborin lömb með bláum merkjalit.

Guðbrandur segir að tvær ær sem voru tvílembdar hafi báðar hafnað öðru lamba sinna. Sjálfar séu kindurnar litblindar en þekki lömbin á lyktinni. Hann hafi hins vegar séð við lyktarskyni þeirra.

„Ég hef fundið það út að ein af fljótlegustu lausnunum þegar ær afneita lömbum, sem eru orðin þurr og kannski tveggja daga gömul, er að úða einhverju yfir þau sem eyðir lyktinni. Síðan gera gamlir og grónir framsóknarmenn rollunni það til háðungar að hafa lömbin blá," segir Guðbrandur og hlær.

Guðbrandur útskýrir að aðferðin virki ekki ef ær sem sé tvílembd afneitar báðum lömbunum. „Þær vita að þær eiga annað lambið og þetta er gert til þess að þær finni ekki muninn á lömbunum," segir fjárbóndinn og undirstrikar að vanda verði vel til verksins og gæta að að liturinn fari á allt lambið. „Ef þær finna einhvern smá blett þar sem þær ná þessari eðlilegu lykt af lambinu þá þekkja þær það eins og skot."

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Guðbrandur beitir litaúðunar-brellunni. „Í fyrra var farið að sleppa á fjall þegar einn gamall kom til mín og spurði hvort það væri virkilega farið að vera með nýtt litaafbrigði á fénu. Þá hafði hann farið langt fram á dal og fann þar kind með græn lömb. Það var ekki alveg það sem hann hafði séð í Selárdalnum áður," segir hann.

Guðbrandur segir litinn engu breyta um eiginleika ullarinnar sem haldi áfram hita á lömbunum á eðlilegan hátt. Þá muni liturinn skolast af í sumar. „Liturinn verður nánast horfinn í haust svo þetta truflar smalana ekki mikið. Þeir ættu ekki að lenda í því að halda að þetta sé huldufé," lofar bóndinn á Bassastöðum.

gar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×